Evrópski fjárfestingarbankinn lánar Isavia 100 milljónir evra til uppbyggingar í Keflavík Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. febrúar 2018 11:00 Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia og Andrew McDowell aðstoðarframkvæmdastjóri Evrópska fjárfestingarbankans skrifuðu undir lánasamninginn á skrifstofu sendinefndar ESB á Íslandi í Aðalstræti í morgun. Vísir/ÞÞ
Fjárfestingarbanki Evrópu mun lána Isavia 100 milljónir evra, jafnvirði 12,5 milljarða króna, til endurnýjunar á núverandi mannvirkjum og afkastaaukningar á Keflavíkurflugvelli. Lánasamningurinn var undirritaður í morgun á skrifstofu sendinefndar Evrópusambandsins á Íslandi í Aðalstræti en Evrópski fjárfestingarbankinn eru í eigu aðildarríkja sambandsins. Bankinn fjármagnar fjárfestingar til lengri tíma í ESB-ríkjum og EFTA-ríkjunum. Lánveitingin nemur 100 milljónum evra, jafnvirði 12,5 milljarða króna. Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia segir að þessi lánveiting sé ekki bara stórtíðindi fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi heldur einnig staðfesting á þeim góða árangri sem náðst hefur í íslensku efnahagslífi á undanförnum árum. „Fyrir mig er þetta endanlegur stimpill um það hvert við erum komin í íslensku efnahagslífi,“ segir Björn Óli. Evrópski fjárfestingarbankinn hafði viðskiptaáætlanir Isavia og spár um áframhaldandi vöxt ferðaþjónustunnar til hliðsjónar þegar ákvörðun um lán var tekin. Lánskjörin eru ekki gefin upp en Björn Óli segir að þau séu mjög góð og almennt betri en Isavia hefði fengið á almennum markaði. „Þegar við sóttum um lánið settum við fram röð af verkefnum sem við höfum unnið að á tímabilinu. Fjármunirnir verða nýttir í verkefni í Keflavík. Næsta stóra verkefnið okkar er tengibyggingin á milli norður- og suðurbyggingarinnar í Leifsstöð. Við munum örugglega nota þetta fé þar og í önnur verkefni sem við erum með í gangi í tengslum við flugstöðina,“ segir Björn Óli.
Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira