Skoraði 50 stig í sigri á meisturunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. janúar 2018 07:30 Lou Williams setti 50 stig á meistarana. Vísir/Getty
Lou Wlliams átti stórleik þegar LA Clippers gerði sér lítið fyrir og skellti meisturum Golden State Warriors í NBA-deildinni í nótt, 126-106. Williams skoraði 50 stig í leiknum, þar af 27 í þriðja leikhluta. Hann nýtti alls 16 af 27 skotum sínum og setti niður átta þriggja stiga körfur. Munurinn að loknum þriðja leikhluta var sjö stig en Golden State náði ekki brúa bilið í fjórða leikhluta. Kevin Durant, sem hafði misst af síðustu þremur leikjum Golden State vegna meiðsla, sneri aftur í nótt og var með 40 stig. Þar með varð hann 44. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem afrekar að skora 20 þúsund stig á ferlinum. Tvíframlengja þurfti leik Chicago og New York í Madison Square Garden í nótt og fór svo að gestirnir frá Chicago höfðu betur, 112-119. Finnski landsliðsmaðurinn Lauri Markkanen var frábær í liði Chicago og skoraði 33 stig. Þetta var áttunda tap New York í síðustu tíu leikjum liðsins. Michael Beasley skoraði 26 stig fyrir liðið og Kristaps Porzingis 24. Houston vann Portland 121-112, þar sem Chris Paul skoraði 37 stig fyrir Houston. James Harden spilaði ekki með liðinu vegna meiðsla.Úrslit næturinnar: Charlotte - Dallas 111-115 Indiana - Miami 106-114 Washington - Utah 104-107 Brooklyn - Detroit 80-114 New York - Chicago 119-112 Houston - Portland 121-112 Memphis - New Orleans 105-102 Milwaukee - Orlando 110-103 Minnesota - Oklahoma City 104-88 Denver - Atlanta 97-110 Golden State - LA Clippers 106-125
NBA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Missti af leik með KR vegna herskyldu „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Sjá meira