Þrír íslenskir þjálfarar í sama riðli á HM í handbolta: Ísland með Króatíu og Spáni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2018 11:09 Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/EPA
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er í erfiðum riðli með Króatíu og Spáni á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer fram í Þýskalandi og Danmörku í janúar 2019. Dregið var í riðla fyrir úrslitakeppni HM 2019 í Kaupmannahöfn í dag. Riðill íslenska landsliðsins verður spilaður í München í Þýskalandi. Auk Króatíu og Spáni eru í riðlinum Makedónía, Japan og Barein. Heimsmeistarakeppnin fer fram frá 9. til 27. janúar á næsta ári. Tveir aðrir íslenskir þjálfarar eru með lið sín í riðli Íslands. Þar eru nefnilega líka Japan, lið Dags Sigurðssonar, og Barein, lið sem mætir til leiks undir stjórn Aron Kristjánssonar. Guðmundur Guðmundsson, þjálfari íslenska landsliðsins, er einmitt maðurinn sem kom Barein inn á HM. Hann ætti því að þekkja þessa mótherja íslenska liðsins mjög vel. Svíþjóð, lið undir stjórn Kristjáns Andréssonar, er í riðli með Katar og Ungverjalandi en sá riðill verður spilaður í Berlín í Þýskalandi. Austurríki, lið undir stjórn Patreks Jóhannessonar, er með Dönum og Noregi í riðli. Sá riðill fer fram í Jyske Bank Boxen í Herning. Þjóðverjar völdu sér ekki aðeins riðil heldur fengu þeir einnig Suður-Kóreu í sinn riðil því það var ákveðið fyrir fram að opnunarleikur mótsins verður á milli Þýskalands og Suður-Kóreu.Riðlarnir á HM í handbolta 2019 líta svona út:A-riðill(Spilaður í Mercedes-Benz Arena í Berlin) 1. Frakkland 2. Rússland 3. Þýskaland 4. Serbía 5. Brasilía 6. Suður-KóreaB-riðill(Spilaður í Olympiahalle í München) 1. Spánn 2. Króatía 3. Makedóníu 4. Ísland 5. Barein 6. JapanC-riðill(Spilaður í Jyske Bank Boxen í Herning) 1. Danmörk 2. Noregur 3. Austurríki 4. Túnis 5. Síle 6. Sádí ArabíaD-riðill(Spilaður í Royal Arena í Kaupmannahöfn) 1. Svíþjóð 2. Ungverjaland 3. Katar 4. Argentína 5. Egyptaland 6. Angóla
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti Fleiri fréttir „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Sjá meira