Frábær sigur U21 liðsins í sjö marka leik Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 6. september 2018 19:02 Albert Guðmundsson er fyrirliði U21 landsliðsins vísir/anton
Íslenska landsliðið í fótbolta skipað leikmönnum 21 árs og yngri vann öruggan sigur á Eistum á Kópavogsvelli í kvöld. Sigurinn var mikilvægur í baráttunni um sæti í lokakeppni EM U21. Fyrir leikinn var Ísland í fjórða sæti riðilsins með 8 stig úr 6 leikjum, fjórum stigum frá Slóvökum í öðru sætinu. Fjögur bestu liðin í 2. sæti fara í umspil um sæti á EM. Íslenska liðið byrjaði af krafti og uppskar tvö mörk á fjögurra mínútna kafla í fyrri hálfleik. Uppskriftin að báðum mörkum var sú sama, Jón Dagur Þorsteinsson með stoðsendinguna á Óttar Magnús Karlsson. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks ákvað Samúel Kári Friðjónsson að skella í eitt langskot þegar hann var kominn rétt yfir miðju. Boltin smaug í samskeytin, óverjandi fyrir eistneska markmanninn. Staðan 3-0 í hálfleik Eftir rólega byrjun á seinni hálfleiknum skoraði Arnór Sigurðsson fjórða mark Íslands á 53. mínútu. Stuttu seinna fékk Albert Guðmundsson boltann í höndina inni í vítateig og réttlega dæmd vítaspyrna. Frank Liivak fór á punktinn og skoraði af öryggi. Albert bætti upp fyrir vítaspyrnuna með því að skora fimmta mark Íslands eftir enn eina stoðsendinguna frá Jóni Degi. Eistar náðu öðru sárabótamarki á 68. mínútu er Sören Kadma skoraði en sigur Íslands aldrei í hættu. Lokatölur á Kópavogsvelli 5-2. Ísland mætir Slóvakíu á þriðjudaginn 11. september, sá leikur fer fram á Alvogenvellinum í Vesturbænum. Ísland og Slóvakía hafa nú bæði leikið sjö leiki og aðeins einu stigi munar á liðunum eftir sigur Íslands í kvöld.
Fótbolti Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Fleiri fréttir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira