Sigfús Páll tekur fram skóna og spilar með nýliðunum í vetur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 27. júní 2017 18:00 Sigfús Páll í gula búningnum. mynd/fjölnir
Nýliðar Fjölnis í Olís-deild karla halda áfram að safna liði en í dag skrifaði Sigfús Páll Sigfússon undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu Fjölnis. Sigfús, sem er 31 árs leikstjórnandi, var aðstoðarþjálfari Fjölnis á síðasta tímabili en hefur nú tekið skónna af hillunni. Sigfús er uppalinn hjá Fram og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2006. Sama tímabil var Sigfús valinn efnilegasti leikmaður efstu deildar og besti sóknarmaðurinn á lokahófi HSÍ. Sigfús færði sig um set til Vals 2007 og lék með Hlíðarendafélaginu í þrjú ár áður hann fór aftur til Fram. Sigfús varð Íslandsmeistari með Fram í annað sinn 2013. Sumarið 2014 hélt Sigfús til Japans, heimalands móður sinnar, og lék með Wakunaga í Hírósíma. Hann flutti aftur til Íslands vorið 2016 en hann hafði þá glímt við erfið veikindi sem héldu honum utan handknattleiksvallarins Sigfús er fjórði leikmaðurinn sem Fjölnir fær í sumar. Áður höfðu þeir Theodór Ingi Pálmason, Bergur Elí Rúnarsson og Andri Berg Haraldsson gengið í raðir félagsins. Þeir komu allir frá KR. Fjölnir vann 1. deildina með yfirburðum á síðasta tímabili og leikur því í Olís-deildinni á næsta tímabili, í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira