Réttur barnsins að fá bólusetningu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 23. mars 2017 20:00
Níu mánaða barn á Íslandi greindist með mislinga í vikunni eftir ferðalag til Taílands en ekki er bólusett við mislingum fyrr en við átján mánaða aldur. Í kjölfarið hefur spunnist umræða um bólusetningar en um fimm prósent íslenskra barna eru ekki bólusett gegn mislingum. „Þetta er absalút réttur barnsins, að fá bólusetningu og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tekur á þessu," segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir. Í barnasáttmálanum segir að börn eigi að njóta besta mögulegs heilsufars sem hægt sé að tryggja, með læknisaðstoð og heilbrigðisþjónustu. Einnig að aðildaríki skuli berjast gegn sjúkdómum. Sóttvarnarlæknir vill þó ekki ganga svo langt að lögleiða bólusetningar á Íslandi enda sé þátttakan mjög góð, eða um 95 prósent. „Ef hinsvegar þátttakan fer niður fyrir 85-90 prósent, því fólk vill ekki mæta í bólusetningu, þá horfir málið allt öðruvísi við," segir Þórólfur. Foreldrum óbólusettra barna ber ekki skylda að tilkynna það til skólayfirvalda eða nánasta umhverfis og Þórólfi finnst ekki ástæða til þess. „Mér finnst það einkaréttur einstaklinga hvort barn sé bólusett eða ekki. Sama gildir um sjúkdóma, ef barnið er með sjúkdóm þá er ekki réttur annarra að vita það. Það getur verið réttur þeirra að vita það ef barnið er með smitandi sjúkdóm sem gæti sýkt önnur börn. En það sama gildir um bólusetningar og ýmislegt annað, það er ekki réttur annarra að vita það.“ Sóttvarnalæknir telur heldur ekki tímabært að gera bólusetningu að forsendu fyrir skólavist eins og gert er til dæmis víða í Bandaríkjunum og Bretlandi. Hann segir það vera úrræði ef þátttakan dettur niður. „Ég undirstrika það að almennur velvilji er mikill hér á Íslandi og við eigum að nýta okkur það og ekki eyðileggja það með harkalegum aðgerðum,“ segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir.
Mest lesið Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Sjá meira