Seinkun á öllu flugi Icelandair í kvöld 17. apríl 2017 18:21 Veðrið hefur sett samgöngur úr skorðum. vísir/vilhelm
Öllum flugferðum Icelandair í kvöld hefur verið seinkað en ekki er búist við að fresta þurfi flugi, segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Veður á að taka að lægja um klukkan 22 í kvöld og þá ætti flug að komast aftur í eðlilegt horf. „Það verður seinkun á öllu flugi á eftir myndi ég halda. Það hefur engu flugi verið aflýst en ein vél þurfti að lenda á Akureyri í dag og hún bíður þar ennþá,“ segir Guðjón. „Þetta hefur gengið ágætlega hjá okkur í dag. Þetta snýst mest um hvernig hægt er að vinna á jörðu niðri við afgreiðslu véla og þess háttar en það er bara gert hlé á slíkri vinnu útaf veðrinu,“ bætir hann við. Samgöngur hafa farið út skorðum vegna óveðursins í dag. Flugfélag Íslands ráðgerði til að mynda að fljúga fimm sinnum frá Ísafirði vegna tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, en uppbókað var í öll sæti þaðan í dag. Til þess að koma sem flestum til Reykjavíkur áður en veðrið skall á var þremur flugferðum flýtt. Seinni partinn í dag var flugi til og frá Ísafirði aflýst. Athuga á með flug til Egilsstaða og Akureyrar klukkan 19.15 í kvöld en flugfélagið Ernir hefur aflýst ferðum sínum til Vestmannaeyja.
Fréttir af flugi Veður Mest lesið Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Innlent Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Innlent Neita öll sök í Reykholtsmálinu Innlent Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Innlent Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Erlent Tilkynnt um mann með sverð Innlent Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Erlent Fleiri fréttir Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Ólafsfjarðarmúla lokað vegna snjóflóðs Kjartan Atli leiðir Samfylkinguna í Garðabæ Heimsmarkaðsverð í hæstu hæðum, sannir aðdáendur Laufeyjar og harka í ESB umræðum Tilkynnt um mann með sverð Stöðvuðu stút með naglamottu „Ég hef aldrei heyrt aðra eins fyrirspurn á ævinni“ Fyrsta konan sem skipuð er yfirlögregluþjónn Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Rúta skíðlogar í Hafnarfirði Neita öll sök í Reykholtsmálinu Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Óveðrinu slotar í bili og átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Kæra aftur útboð Vestmannaeyjabæjar á líkamsræktarstöð Enginn verði á biðlista eftir hjúkrunarrými eftir þrjú ár Bein útsending: Ný áætlun fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila Flestir telja veikindarétt og starfsöryggi ríkari hjá hinu opinbera Um 500 leituðu skjóls í fjöldahjálparstöð og á hótelum Aldrei séð flóð falla á þessum stað á átján ára ferli Guðmundur Ingi snýr aftur á þing í dag „Mjög mikill fjöldi sem við vorum að taka á móti“ Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Eldur kviknaði í fjölbýli í Úlfarsárdal Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Sjá meira