Illugi Gunnarsson verður stjórnarformaður Byggðastofnunar Sveinn Arnarsson skrifar 24. apríl 2017 07:00 Illugi Gunnarsson. Vísir/Anton Brink
Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn, verður á morgun settur stjórnarformaður Byggðastofnunar á ársfundi stofnunarinnar sem haldinn verður í Skagafirði. Þetta herma öruggar heimildir Fréttablaðsins. Herdís Á. Sæmundardóttir hefur setið undanfarin tvö ár sem formaður stjórnar en hún var sett í embætti í apríl 2015 af Sigurði Inga Jóhannssyni, þáverandi ráðherra byggðamála og núverandi formanni Framsóknarflokksins. Núverandi ráðherra byggðamála, Jón Gunnarsson, ætlar því að skipta um stjórnarformann og velur hann Illuga til verksins. Fréttablaðið hefur ekki heimildir fyrir því hvort fleiri breytingar verði á stjórn Byggðastofnunar sem hefur styrkt sig mikið síðustu árin. Illugi Gunnarsson hóf þingmennsku árið 2007 og sat á Alþingi fram að síðustu kosningum. Hann tók sér rúmlega árs leyfi frá þingstörfum á árunum 2010 og 2011 vegna stjórnarsetu í peningamarkaðssjóðum Glitnis sem voru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Byggðastofnun hefur síðustu ár skilað myndarlegum afgangi þrátt fyrir að markmið stofnunarinnar sé að veita lán til staða sem markaðurinn telur sig ekki geta lánað til. Til að mynda skilaði stofnunin rúmlega 150 milljóna króna hagnaði í fyrra og er eigið fé hennar tæpir þrír milljarðar króna. Árslaun stjórnarformanns Byggðastofnunar voru um 2,4 milljónir króna í fyrra.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Viðskipti erlent Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Viðskipti innlent Breytingar á fyrsta farrými Neytendur Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Viðskipti innlent Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Viðskipti innlent Skordýr í dillinu Viðskipti innlent Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Atvinnulíf Fleiri fréttir Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Sjá meira