ISIS lýsir yfir ábyrgð á atviki í Melbourne Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. júní 2017 23:37 Lögregluþjónar athafna sig fyrir utan fjölbýlishúsið í Melbourne eftir atvikið í dag. Vísir/afp
Maður hélt konu í gíslingu í Brighton, úthverfi borgarinnar Melbourne í Ástralíu, í dag. Lögregluyfirvöld segja atvikið í borginni „hryðjuverk.“ Lögregla skaut manninn til bana á vettvangi en annar maður lét einnig lífið í umsátrinu. Reuters greinir frá. Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa lýst yfir ábyrgð á atvikinu en fréttaveita samtakanna, Amaq, segir árásinni hafa verið hrint af stað vegna baráttu ástralskra yfirvalda gegn ISIS. „Við förum með málið eins og hryðjuverk,“ sagði lögreglustjóri hins ástralska Viktoríufylkis, Graham Ashton, í viðtalið við sjónvarpsstöðina Seven. „Við höldum að þessi manneskja hafi verið þarna með það í huga, þó að við vitum ekki hvort um hafi verið að ræða skipulagða árás eða eitthvað sem ákveðið var í skyndi.“ Lögregla bjargaði konunni, sem árásarmaðurinn hélt í gíslingu í fjölbýlishúsi í Melbourne, en þrír lögreglumenn særðust í umsátrinu. Þá lést annar maður á vettvangi, sem orðið hafði fyrir byssuskoti. Hátt viðbúnaðarstig hefur verið í Ástralíu síðan hryðjuverkamaður á vegum ISIS tók fjölda fólks í gíslingu á kaffihúsi í Sydney, stærstu borg landsins, í desember 2014. Nú síðast lýstu hryðjuverkasamtökin yfir ábyrgð á árásinni í London sem gerð var á laugardagskvöld.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira