Áskorun til nýrrar ríkisstjórnar: Útrýmum fátækt á Íslandi! Kristín Ólafsdóttir skrifar 29. nóvember 2017 07:00 Hjálparstarf kirkjunnar undirbýr nú aðstoð við fólk sem til okkar leitar fyrir jólin sérstaklega. Í fyrra nutu um 4.000 manns þessarar aðstoðar sem er fyrst og fremst í formi inneignarkorta fyrir matvöru en fólk fær einnig hjá okkur notaðan fatnað eða inneignarkort fyrir fatnaði og þá fá foreldrar efnislega aðstoð svo börnin geti fengið jólagjafir sem þau hafa sett á óskalistann. Fólkið sem leitar til Hjálparstarfs kirkjunnar á Íslandi á flest erfitt með að ná endum saman vegna lágra tekna og mikils húsnæðiskostnaðar. Þegar fólk á erfitt með að mæta þeirri grunnþörf að hafa þak yfir höfuðið hefur það áhrif á allt annað í lífinu. Í félagsvísum Hagstofunnar frá 2015 segir að 23% öryrkja og 20,3% einstæðra foreldra búi við skort á efnislegum gæðum en það þýðir til dæmis að hafa ekki efni á að fara árlega í vikulangt frí með fjölskyldunni, að hafa ekki efni á kjöti, fiski eða sambærilegri grænmetismáltíð að minnsta kosti annan hvern dag og hafa hvorki efni á heimasíma né farsíma eða að hafa ekki efni á sjónvarpstæki, þvottavél, bíl eða að halda húsnæðinu nægjanlega heitu. Við berum öll ábyrgð á samfélaginu sem við búum okkur. Við ákveðum hver ábyrgð ríkis og sveitarfélaga á að vera í stuðningsnetinu fyrir hvern og einn og við ákveðum hvernig við ætlum að skipta með okkur gæðunum, m.a. í kjaraviðræðum. Hvert og eitt okkar ber svo að sjálfsögðu ábyrgð á því að rækta hæfileika okkar og taka þátt í samfélaginu eftir getu. Hjálparstarf kirkjunnar skorar á nýja ríkisstjórn að útrýma fátækt á Íslandi á kjörtímabilinu 2017–2021 og byrja á því strax við undirbúning fjárlagafrumvarps fyrir árið 2018. Við lýsum okkur reiðubúin til þess að taka þátt í þverfaglegu starfi til þess að svo megi verða og skorum á þá sem búa við fátækt að gera það einnig! Höfundur er upplýsingafulltrúi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira