Lögreglan Nichole Leigh Mosty skrifar 22. júní 2017 07:54 „You can‘t handle the truth“. Já, það sagði ég og já ég veit…það þykir kannski ekki mjög ábyrgt af þingkonu og varaformanni Allsherjar- og menntamálanefndar að vitna í gamla bíómynd þegar um er að ræða svona mikilvægt mál. Ég viðurkenni hins vegar að þegar ég sat á fundi með Ríkislögreglustjóra, velti ég fyrir mér hvort ég vildi í raun og veru vita nákvæmlega allt um hvaða mögulega áhætta væri til staðar. Hluti af öryggistilfinningu okkar byggir á því að hafa ekki áhyggjur af öllu og að vita að til er fólk sem gætir okkar. Ég hef alltaf fylgt því prinsippi að ég þurfi ekki að vita allt því betra sé að treysta fagaðilum sem þekkja málin, kunna þau og vita hvernig best er að bregðast við. Samkvæmt lögum ber lögreglu skylda til að varðveita trúnað og öryggi hins almenna borgara. Sem betur fer er þeirra starf byggt á þessum grundvallaratriðum. Trúnaður lögreglu snýst um að sjá til þess að við séum örugg og það er mín skoðun að ég eigi ekki að grafa undan trausti til lögreglu með því að krefjast þess að þessi trúnaður sé brotinn. Og þessi skoðun mín er byggð á því að öryggi borgaranna sé undir. Ég vona að fólk túlki þessi orð mín ekki þannig að við sættum okkur sjálfkrafa við vopnaburð lögreglu. Lögregla á ekki að ákveða vopnaburð meðal almennra borgara upp á sitt sjálfdæmi. Lögreglunni ber hins vegar skylda til að framkvæma alþjóðlegt hættumat, meta áhættu innanlands, fylgja lögum og reglum, siðferðiskennd og skynsemi. Með breyttum tímum þarf að meta þá ömurlegu þróun og hættu sem hefur verið að aukast í heiminum, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Og lögreglan er betur til þess fallin en fólk sem ekki þekkir þær hættur sem geta verið til staðar, hvað þá að við, almenningur, séum besta fólkið til að meta það. Mér finnst eðlilegt og sjálfsagt mál að við ræðum opinskátt um tilfinningar okkar og skoðum málin. Mér finnst líka sjálfsagt að við tökum upp umræður á Alþingi og í ríkisstjórn um það hvernig eftirliti lögreglu er háttað svo tryggt sé að mætt sé öllum skilyrðum og að ekki skapist tækifæri til að misnota heimildir sem lögreglan hefur til að taka ákvarðanir um það hvernig okkar er gætt. Þegar ég sat fyrir utan Alþingishúsið 17. júní og hlustaði á forsætisráðherrann flytja ræðu sína til landsmanna horfði ég í kringum mig og leið vel. Ég klæddi mig upp og vildi, sem varafoseti þingsins og fulltrúi okkar Íslendinga vera til sóma á þjóðhátíðardaginn. Mörg andlit, bæði innan og utan öryggisgirðingar þekkti ég. Sum tilheyrðu Íslendingum en þarna voru líka saman komnir óþekktir erlendir gestir. Ég er hrifin af því hversu margt fólk vill heimsækja okkur til Íslands. En hvað ef ég hefði setið þarna með upplýsingar um það að á meðal þessarra erlendu gesta væri einhver sem vildi gera okkur mein eða fremja hryðjuverk? Hvernig hefði mér liðið þá? Ég leyfði mér ekki að hugsa um það því ég sá að lögreglan var þarna mætt til að gæta öryggis þeirra sem saman voru komnir á Austurvelli að fagna þjóðhátíðardeginum. Ég tel að það verði að vera undantekning að sérsveit og lögregla mæti vopnuð til leiks við samkomur á almannafæri. Ég er stolt af því að búa í landi sem er friðsælt og án hers. Ég monta mig oft þegar ég fer heim til Bandaríkjanna á því að búa í herlausu landi þar sem almenningur er óvopnaður og við treystum lögreglunni. Ég tala líka um það hversu gott það er að þurfa ekki að óttast þá sem ég treysti til að gæta míns öryggis og fjölskyldu minnar en það hefur því miður verið raunin í mínu heimalandi, sérstaklega þegar minnihlutahópar eiga í hlut. Það er dapurlegt. Þegar við tölum um öryggistilfinningu almennings er best sé að við séum ekki áhyggjufull og hrædd. Það er ör þunn lína á milli þess að vera hrædd vegna upplýsinga sem við búum yfir og vera hrædd vegna þess að við höfum ekki nægilegar upplýsingar. Núna er það þannig að við skiljum ekki á hverju viðbúnaðarstig lögreglunnar byggir. Okkur finnst erfitt að sætta okkur við það að búa við þann veruleika að áhætta sem áður tilheyrði eingöngu hinum stóra heimi, skuli möguega vera komin hingað til lands. Við viljum halda áfram að upplifa það að búa í friðsælu landi og vera fyrirmyndarsamfélag. Við viljum útrýma ofbeldi og auka vellíðan allra. Það er því mikilvægt að við finnum leið til þess að ræða það sem okkur hugnamst ekki, án þess að setja það í „annað hvort já eða nei“ samhengi. Ég hef trú á að vel upplýst þjóð sé skynsöm þjóð og að traust sé byggt á gagnkvæmu og virku samráði. Næstu skref hjá okkur eru að leita að lausn þar sem við getum rætt saman um það hvernig við treystum lögreglunni til að tryggja öryggi okkar og að við verðum upplýst um hvað hún telur nauðsynlegt að við vitum. Samtal milli þings og lögreglu átti sér stað á fundi í síðustu viku og samtal er alltaf af hinu góða. Ég vil bæta því við í lokin að mér líður vel með að vita að horft er til nágrannalandanna til að læra af því hvað vel gengur og hvað síður. Með því náum við að vera skrefi á undan þeim sem vilja vinna öðrum mein. Á meðan ég sit hér og axla ábyrgð í þinginu, vil ég ekki þurfa að horfa upp á hörmungar eiga sér stað hér á Íslandi og viðurkenna að hafa ekki veitt lögreglunni heimild til að gæta öryggis landsmanna. Til þess þarf ég að treysta. Höfundur er þingmaður Bjartrar framtíðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nichole Leigh Mosty Mest lesið Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreindin sparar tíma og peninga Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvar lendir sleggjan næst? Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Gaur! Vertu töffari! Sveinn Waage skrifar Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar Skoðun Hver fær reikninginn? Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar Skoðun Hvar eru gögnin að baki ákvörðuninni? Gréta María Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er einkavæðingin hættulegri en gervigreindin? Kristján Logason skrifar Skoðun Saklaus uns Diljá ákveður annað Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Sameining lögregluumdæma – Tækifæri fyrir Búðardal Guðbrandur Tumi Gíslason skrifar Skoðun „Samningsfrelsi“ braskara eða leigubremsa? Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Einkunnakerfi í öngstræti Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki einu sinni Margrét Einarsdóttir getur fullyrt það Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Ég gerði tilraun til lýðræðislegrar uppreisnar í VG Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Til varnar tjáningarfrelsi Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
„
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Við segjum STOPP - verjum Seyðisfjörð og náttúru Íslands Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar
Skoðun Mjög góður árangur fyrirbyggjandi ónæmisaðgerða gegn RSV hjá ungum börnum Valtýr Stefánsson Thors skrifar
Skoðun Styrkleikar barna og ungmenna – grunnur að betri líðan og námsárangri Steinn Jóhannsson skrifar
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun