Ekki þörf á sérstökum aðgerðum vegna snjóalaga Svavar Hávarðsson skrifar 28. febrúar 2017 06:45 Mikil vinna bíður við að létta á snjófarginu sem nú liggur yfir. vísir/vilhelm
Ekki er talin þörf á því að grípa til sérstakra aðgerða vegna snjóalaga innan höfuðborgarsvæðisins – en vitað er að hreinsun gatna og stíga mun taka töluvert langan tíma. Öllu er tjaldað til, öfugt við það sem gerðist þegar öfgarnar sneru í hina áttina framan af vetri – sem kemur vel fram í tölfræði borgarinnar vegna vetrarþjónustu. Menn þakka hins vegar almættinu fyrir blíðuna sem fylgdi í kjölfar snjókomunnar. Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, segir það ekki skipta neinu sérstöku máli fyrir þá sem sinna vetrarþjónustu hvort fallið hafi 20 eða rúmlega 50 sentimetrar af snjó á stuttum tíma – unnið sé eftir sömu áætlun í báðum tilvikum. „Við erum með sólarhringsvakt frá nóvember og út apríl, þá vöktum við aðstæður og bregðumst við eftir þörfum. Verkefnin eru áþekk – en eru auðvitað tímafrekari við þessar aðstæður,“ segir Hjalti og bætir við að á nokkrum stöðum þurfi að keyra burt snjó – einkanlega þar sem þröngt er í íbúðahverfum. Hjalti segir hreinsunarstarfið ganga vel – það sé ekki því síst að þakka að borgararnir sýna því mikinn skilning hversu erfitt verkefnið er og að ljúka því svo öllum líki. Í fyrrinótt var byrjað á húsagötum af alvöru og samhliða því að breikka og víkka þar sem farið hefur verið um nú þegar. „Á sunnudeginum vorum við líkast til með um 50 tæki í gangi, en í nótt [aðfaranótt mánudags] með rúmlega 30 tæki úti og það heldur sér næstu daga. Bæði er þetta okkar vinna og verktaka, sem ég veit ekki nákvæmlega hvað eru margir – en það er bæði einyrkjar og stærri verktakar. Það er reynt að nota allt sem ræður við þetta snjómagn á annað borð,“ segir Hjalti sem viðurkennir aðspurður að hefði blásið hressilega í kjölfar snjókomunnar hefði mikill vandi hlotist af, og ekki verið við neitt ráðið.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent Fleiri fréttir Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Sjá meira