Lykilmaður hjá Icelandair seldi bréf fyrir 130 milljónir

Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair Group seldi Magnús, sem er framkvæmdastjóri Fjárvakurs, dótturfélags Icelandair Group, og einn af átta manna framkvæmdastjórateymi félagsins, bréfin dagana 5. til 7. september. Viðskiptin voru tilkynnt til regluvarðar Icelandair sem upplýsti Fjármálaeftirlitið (FME) um þau. Magnús er fruminnherji en ekki einn af æðstu stjórnendum fyrirtækisins og því voru viðskiptin ekki flögguð í Kauphöll Íslands. Ekki fengust upplýsingar hjá Icelandair Group um hvort æðstu stjórnendur félagsins hefðu óskað eftir skýringum á sölunni. Magnús segir í skriflegu svari til Fréttablaðsins að hann telji ekki við hæfi að ræða persónuleg fjármál sín við fjölmiðla.
Samkvæmt ársreikningi Icelandair Group, sem fyrirtækið kynnti eftir lokun markaða á þriðjudag, áttu átta framkvæmdastjórar þess og fjármálastjórinn Bogi Nils Bogason alls 6,1 milljón hluta í flugfélaginu í árslok 2015. Ári síðar hafði talan lækkað niður í 1,1 milljón hluta. Samkvæmt svari fyrirtækisins er því ljóst að enginn annar framkvæmdastjóri seldi bréf á árinu.
Kauphöll Íslands barst aftur á móti tilkynning um sölu Katrínar Olgu Jóhannesdóttur, stjórnarmanns í Icelandair Group, á 400.000 hlutum í flugfélaginu. Viðskiptin áttu sér stað, líkt og áður hefur komið fram, 30. september eða rúmum þremur vikum eftir að Magnús seldi. Markaðsverðmæti bréfa Katrínar Olgu nam 9,6 milljónum króna og vöktu viðskiptin mikla athygli þar sem þau áttu sér stað á síðasta viðskiptadegi þriðja ársfjórðungs.
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Uppfært kl. 11.15: Icelandair Group áréttar að Magnús er fruminnherji hjá fyrirtækinu. Hann sé hins vegar ekki einn af æðstu stjórnendum en það sé sá hópur sem tilkynnt sé um sérstaklega til Kauphallar Íslands, í samræmi við 127. grein laga um verðbréfaviðskipti. Því hafi verið tilkynnt um viðskiptin til Fjármálaeftirlitsins en ekki Kauphallar. Fréttin hefur verið leiðrétt í samræmi við þetta.
Tengdar fréttir

Fjárfestar í Icelandair skildir eftir í myrkrinu
Icelandair hefur verið skellt niður á jörðina. Fjárfestar, sjóðstjórar og verðbréfamiðlarar, sem Markaðurinn hefur rætt við, eru á einu máli um að það hafi orðið "meiriháttar trúnaðarbrestur,“ eins og einn viðmælandi lýsir því, á milli stjórnenda Icelandair og hluthafa fyrirtækisins.

Margir boltar á lofti og hlutabréfin lækka
Sérfræðingur á hlutabréfamarkaði segir ekki koma á óvart að fjárfestar stígi varlega til jarðar í kjölfar uppgjörsfundar Icelandair Group. Félagið íhugar að breyta fargjöldum á Saga Class og vöruframboði til að mæta samkeppni.

Gagnrýnir sölu á bréfum stjórnarmanns í Icelandair
Svanhildur segir í harðorðri grein að sala Katrínar Olgu Jóhannesdóttur á bréfum í félaginu skömmu áður en uppgjörstímabili lauk sé til marks um að hún láti eigin hagsmuni ganga fyrir hagsmunum fyrirtækisins.

Stjórnarmaður selur í Icelandair: Hlutabréfin taka dýfu
Gengi hlutabréfa í Icelandair Group hafa lækkað um 4,68 prósent í dag í 908 milljón króna viðskiptum.