Hagnaður Virðingar meira en fjórfaldaðist á árinu 2016 Hörður Ægisson skrifar 8. febrúar 2017 16:04 Hannes Frímann Hrólfsson, forstjóri Virðingar, segir afkomu síðasta árs hafa verið þá bestu í sögu félagsins.
Hagnaður Virðingar á árinu 2016 nam liðlega 460 milljónum króna borið saman við 104 milljónir árið áður. Þá jukust hreinar tekjur verðbréfafyrirtækisins um 43 prósent á milli ára og voru samtals 1.275 milljónir króna í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en þar segir að afkoma síðasta árs hafi verið sú besta í sögu Virðingar. „Rekstur Virðingar gekk vel á öllum sviðum á síðasta ári sem er okkar besta frá upphafi. Heildarfjárhæð eigna í stýringu nam um 100 milljörðum króna í lok árs. Mikill vöxtur var á öllum sviðum félagsins og útlitið er bjart,“ er haft eftir Hannesi Frímanni Hrólfssyni, forstjóra Virðingar í tilkynningu. Fyrirtækjaráðgjöf félagsins hafði meðal annars umsjón með söluferli Ölgerðarinnar, Lyfju, Leigufélagsins Kletts og fasteignafélagsins BK eigna á árinu 2016. Í tilkynningu Virðingar segir jafnframt að framtakssjóðir í rekstri félagsins hafi skilað góðri afkomu og eins var ávöxtun eigna í stýringu góð á árinu. „Þá hefur Virðing fengið heimild breska fjármálaeftirlitsins til að fara með virkan eignarhlut í bresku verðbréfafyrirtæki sem mun hljóta nafnið Virðing Securities. Starfsemi þess félags mun hefjast formlega nú í febrúar. Það blasa því við fjölmörg tækifæri til áframhaldandi vaxtar bæði hérlendis og erlendis,“ segir Hannes Frímann. Virðing og Kvika banka undirrituðu viljayfirlýsingu undir lok síðasta árs um sameiningu félaganna og standa nú yfir áreiðanleikannanir í tengslum við það.
Mest lesið Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Tilboð á uppþvottavél reyndist of gott til að vera satt Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira