Ronaldo leikmaður ársins Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. október 2017 20:00 Cristiano Ronaldo fær verðlaun sín fyrir að vera í úrvalsliði heimsins í Lundúnum í kvöld vísir/getty
Cristiano Ronaldo var í kvöld verðlaunaður af alþjóðaknattpspyrnusambandinu, FIFA, sem besti leikmaður ársins. Valið er byggt á atkvæðum fyrirliða allra landsliða heims, landsliðsþjálfara, úrvaldra fjölmiðlamanna og kosningu á Fifa.com. Vega atkvæði þessara fjögurra flokka öll jafnt, eða 25 prósent hver. Ronaldo spilar með Spánar- og Evrópumeisturum Real Madrid. Hann vann verðlaunin 2008, 2013, 2014, í fyrra og nú árið 2017. Besta knattspyrnukona ársins var valin Lieke Martins. Hún var valin besti leikmaður Evrópumótsins í Hollandi í sumar og besta knattspyrnukona Evrópu á svipuðu verðlaunahófi UEFA fyrr í ár. Martins spilar með Barcelona og hollenska landsliðinu. Besta mark ársins var sporðdrekaspyrna Olivier Giroud fyrir Arsenal á móti Crystal Palace á Nýársdag 2017. Giroud tileinkaði pabba sínum verðlaunin. Markið má sjá í spilaranum hér að neðan. Zinedine Zidane var valinn besti þjálfari karlaliðs, og varð með því fyrstur til þess að verða valinn bæði besti leikmaður heims og svo síðar besti þjálfari heims. Zidane þjálfar Real Madrid sem urðu í vor fyrsta liðið til þess að verja Evrópumeistaratitil sinn þegar liðið hafði betur gegn Juventus í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Besti þjálfari kvennaliðs var Sarina Wiegman sem leiddi Hollendinga til sigurs á Evrópumótinu í sumar. Hún hafði áður orðið fyrst kvenna til þess að þjálfa atvinnumannalið karla í Hollandi. Úrvalslið ársins skipa Gianluigi Buffon, Marcelo, Sergio Ramos, Leonardo Bonucci, Dani Alves, Luka Modric, Toni Kroos, Andres Iniesta, Lionel Messi, Neymar og Cristiano Ronaldo. Francis Kone frá Togo fékk háttvísiverðlaun FIFA fyrir það að hafa fjórum sinnum bjargað lífi annars fótboltamanns á vellinum með skyndihjálp, Gianluigi Buffon var valinn markvörður ársins og stuðningsmenn Celtic fengu stuðningsmannaverðlaunin fyrir það hvernig þeir heiðruðu 50 ára afmæli Evrópusigurs Celtic í vor.
Fótbolti Mest lesið „Mér var sagt að drulla mér í burtu og grjóthalda kjafti“ Fótbolti Fyrrverandi leikmaður Arsenal og Everton alvarlega veikur á spítala Enski boltinn „Skiptir ekki máli hvort ég sé þungur eða léttur, ég skora alltaf“ Fótbolti Bayern vill kaupa leikmann af ósigruðu meisturunum Fótbolti Fúlar stjörnur sem þurfa að spila fram á nótt í París Sport Bellingham bað um bolamynd eftir úrslitaleikinn fyrir mömmu sína Fótbolti „Þurfti ekki að vera neitt meira en ég sjálf“ Sport Dagskráin í dag: Risaslagur í Bestu deildinni Sport „Við vorum mjög öflugir í 70 mínútur“ Íslenski boltinn Orri og félagar þrefaldir meistarar í Portúgal Handbolti Fleiri fréttir Neymar hló að Ronaldo Fyrrverandi leikmaður Arsenal og Everton alvarlega veikur á spítala Bellingham bað um bolamynd eftir úrslitaleikinn fyrir mömmu sína Bayern vill kaupa leikmann af ósigruðu meisturunum „Mér var sagt að drulla mér í burtu og grjóthalda kjafti“ „Skiptir ekki máli hvort ég sé þungur eða léttur, ég skora alltaf“ „Við vorum mjög öflugir í 70 mínútur“ Bjarki Steinn og Mikael Egill upp í Serie A með Venezia „Það bara fauk út í veður og vind í þessu roki“ Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 5-2 | Öruggt hjá meisturunum eftir erfiða byrjun Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum Elías Már og félagar upp í efstu deild eftir ótrúlega dramatík Loks sigur hjá Brynjólfi og félögum Valgeir Lunddal á skotskónum í öðrum leiknum í röð Uppgjörið og viðtöl: Vestri-Stjarnan 4-2 | Vestramenn með stjörnuleik Fenerbahce staðfestir Mourinho Mbappe búinn að skrifa undir hjá Real Madrid Mjög ósáttur við rasisma meðal þýsku þjóðarinnar Sjáðu Valgeir opna markareikninginn sinn í sumar Emma Hayes vann fyrsta leikinn og Cloé Eyja skoraði Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar Sjáðu markasúpu fyrri hálfleiksins á Akureyri í gær Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn „Besta kvöld lífs míns“ Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Sjá meira