Bankasýslan minnir á að arðgreiðslur séu á forræði stjórna banka, ekki hluthafa Birgir Olgeirsson skrifar 25. október 2017 12:50 Flestir stjórnmálaflokkar sem eru í framboði í þingkosningunum á laugardag hafa lagt til að eigið fé viðskiptabankanna þriggja verði minnkað um tugi til hundrað milljarða króna vísir/vilhelm
Ætla má að hlutur ríkissjóðs í umfram eigin fé viðskiptabankanna þriggja geti numið 120 milljörðum króna. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Bankasýsla ríkisins tók saman að beiðni fjármála- og efnahagsráðuneytisins um arðgreiðslugetu viðskiptabankanna þriggja sem ríkissjóður á eignarhlut í. Samkvæmt mati Bankasýslunnar við fyrirspurn ráðuneytisins er mismunur á eigin fé bankanna og þeim eiginfjárkröfum sem Fjármálaeftirlitið hefur sett alls um 253 milljarðar króna. Sé tekið tillit til að óvarlegt þykir að mæta aðeins lágmarkskröfum um eigið fé er gert ráð fyrir að áætlað umfram eigið fé nemi aldrei lægra hlutfalli en þremur prósentum yfir tilskildu lágmarki, sem svarar til um 183 milljörðum króna. Með hliðsjón af hlutfallslegu eignarhaldi ríkissjóðs á viðskiptabönkunum megi því ætla að hlutur ríkissjóðs í umfram eigin fé, sem skilgreint er með þessum hætti, geti numið um 120 milljörðum króna.Arðgreiðslur á forræði stjórnar Bankasýslan bendir á að mikilvægt sé að halda því til haga að það er á forræði stjórna bankanna, en ekki hluthafa, að leggja fram tillögur um arðgreiðslur.Í Markaði Fréttablaðsins í dag er sagt frá því að flestir stjórnmálaflokkar sem eru í framboði í þingkosningunum á laugardag hafi lagt til að eigið fé viðskiptabankanna verði minnkað um tugi til hundrað milljarða króna, áður en þeir verða seldir, til að greiða niður skuldir ríkisins og fjármagna uppbyggingu innviða og önnur kosningaloforð. Í minnisblaði Bankasýslunnar kemur fram að mat á arðgreiðslugetu til framtíðar sé vitanlega háð margvíslegum fyrirvörum, svo sem um að heilbrigt efnahagsástand verði hér næstu árin, að regluverk haldist óbreytt og að fjármálamarkaðir verði opnir fyrir víkjandi lánum til bankanna. Sömuleiðis er bent á þá staðreynd að lækkun eigin fjár í bönkunum leiðir til lækkunar á arðgreiðslugetu síðar.Minna á breyttar reglur Bankasýslan tekur fram að við skoðun á arðgreiðslugetu bankanna sé nauðsynlegt að taka tillit til þess að breyttar reglur um reikningshald ríkissjóðs, sem taka gildi á yfirstandandi ári, hafa í för með sér breytt mat á virði félaga í eigu ríkissjóðs, sem oft er metið hærra en gert var samkvæmt eldri reikningsskilareglum. Í nýjum reglum er virði eignarhluta í félögum metið samkvæmt hlutdeildaraðferð, þ.e. virði eignarhlutarins sem skráð er í ríkisreikningi hvers árs samsvarar hlutfalli eignarhluta ríkisins af heildar eigin fé í ársreikningi viðkomandi félaga. Arðgreiðslur sem lækka eigið fé eru ekki lengur skráðar sem tekjur á rekstrargrunni og hafa því ekki áhrif á rekstrarafkomu ríkissjóðs. Þá er minnt á að í fjármálaáætlun 2018-2022, sem samþykkt var á Alþingi sl. vor, er gert ráð fyrir 140 milljarða óreglulegum tekjum ríkissjóðs á gildistíma áætlunarinnar. Var þar einkanlega horft til arðgreiðslna frá bönkunum. Má því segja að þegar sé búið að gera ráð fyrir verulegum hluta af væntanlegum arðgreiðslum viðskiptabanka í eigu ríkisins í tekjuáætlunum fyrir ríkissjóð á komandi árum.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Fleiri fréttir Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Gluggi er ekki bara gluggi Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Vara við skordýrum í chia-fræjum Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Sjá meira