Hvítasunnuhelgin verður grá Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. júní 2017 10:04 Vísir/ernir
Íslendingar og aðrir sem verja hvítasunnuhelginni á landinu þurfa ekki að kaupa sér aðra túbu af sólarvörn ef marka má Veðurstofuna. Það verður þungbúið svo gott sem alla helgina yfir öllu landinu, hiti á bilinu 3-15 stig og rigning með köflum. Það er útlit fyrir fremur hæga austlæga átt í dag en norðaustan strekking norðvestantil á landinu og með norðurströndinni. Að sögn veðurfræðings verður áfram vætusamt, einkum á austanverðu landinu en á morgun er spáð áframhaldandi austanátt og rigningu. Það verður þó þurrt að mestu norðan heiða fram að hádegi. Hvassast verður við suðurströndina en úrkomulítið norðan heiða fram að hádegi og hiti á bilinu 5-15 stig - hlýjast vestanlands. Um helgina má svo búast við svipuðu veðri en í byrjun næstu viku dregur víða úr úrkomu en fer heldur kólnandi í norðanstæðari vindáttum.Veðurhorfur á landinu næstu daga, af vef VeðurstofunnarÁ laugardag:Austlæg átt, 5-15 m/s, hvassast á Suðurlandi. Dálítil rigning eða skúrir en úrkomulítið vestanlands framan af. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Vesturlandi.Á sunnudag (hvítasunnudagur):Austlæg átt, 3-10, en heldur hvassara við suðurströndina um tíma. Rigning SA-lands, en annars skýjað með köflum og skúrir síðdegis. Hiti svipaður.Á mánudag (annar í hvítasunnu):Norðaustlæg átt, 3-10. Skýjað en úrkomulítið NA-lands, en skýjað með köflum V-til og skúrir síðdegis. Hiti 5 til 14 stig, hlýjast við Borgarfjörð.Á þriðjudag:Norðaustlæg eða breytileg átt. Skúrir SV-til, annars skýjað að mestu en úrkomulítið. Heldur kólnandi.Á miðvikudag og fimmtudag:Hægar norðaustlægar áttir og skýjað að mestu. Dálítil væta S-til, annars þurrt að mestu. Fremur svalt, einkum NA-lands.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira