Hneyksli skekur skraflheiminn Atli Ísleifsson skrifar 14. nóvember 2017 08:42 Simmons var dæmdur fyrir að hafa handfjatlað stafi þegar hann tók þá upp úr pokanum og skilað þeim svo aftur í pokann. Slíkt athæfi er með öllu bannað. Vísir/Getty
Mikið hneyksli skekur nú skraflheiminn eftir að stjörnuspilarinn Allan Simmons var dæmdur í þriggja ára bann frá þátttöku á mótum. Simmons var dæmdur í bann af Samtökum breskra skraflspilara eftir að hafa verið fundinn sekur um svindl. Niðurstaða óháðrar rannsóknarnefndar var að Simmons hafi á mótum handfjatlað stafi þegar hann tók þá upp úr pokanum og skilað þeim svo aftur í pokann. Er um skýrt brot á reglum leiksins að ræða. Simmons hefur skrifað bækur um skrafl og fjallað um leikinn á síðum blaðsins Times. Í frétt Guardian segir að nefndarkonan Elie Dangoor hafi greint frá því í gær að þrír sjónarvottar hafi orðið vitni að brotum Simmons. „Eðlileg niðurstaða var talin að hann hafi svindlað,“ segir Dangoor.Til umræðu á HM Rannsókninni lauk fyrir nokkrum vikum þar sem fjögur mismunandi atvik frá síðasta ári höfðu verið til rannsóknar. Það var hins vegar fyrst fyrir nokkrum dögum sem málið fór þó að vekja athygli og var það til umræðu á heimsmeistaramótinu í skrafli sem lauk nú á sunnudag. Simmons hefur sagt við Times að hann hafni söllum ásökunum um svindl. Times hefur hætt samstarfi sínu við leikmanninn. Guardian hefur ekki náð í Simmons en haft var eftir honum í samtali við Times að hann ætli sér nú að einbeita sér að „mikilvægari hlutum í lífinu“.
Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Aðskilnaðarsinnar að missa þingmeirihluta í Katalóníu Pútín skiptir um varnarmálaráðherra Fjölbýlishús hrundi í Belgorod Fyrsti lifandi svínsnýrnaþeginn er látinn Mótmælin gegn „rússnesku“ lögunum stækka enn Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ Hundruð létust í flóðum Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“ Evrópa böðuð bleiku Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Sjá meira