Innlent

Legsteinasafn Páls fer á ný fyrir úrskurðarnefnd

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Páll Guðmundsson á lóð þá væntanlegs safnhúss nærri gamla Húsafellsbænum í október í fyrra.
Páll Guðmundsson á lóð þá væntanlegs safnhúss nærri gamla Húsafellsbænum í október í fyrra. Vísir/Vilhelm

Deila tveggja landeigenda í Húsafelli þarf að fara að nýju fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.



Eins og Fréttablaðið sagði frá 5. október 2016 er listamaðurinn Páll Guðmundson að reisa nýtt hús við vinnustofur sínar í Húsafelli. „Það er verið að gera legsteinahús um alla gömlu, merkilegu legsteinana sem forfeður mínir á Húsafelli gerðu,“ sagði Páll í Fréttablaðinu.



Deiliskipulag lóðarinnar og byggingarleyfi hússins var kært til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála af Sæmundi Ásgeirssyni, sem keypti gamla Húsafellsbæinn á árinu 2009 og rekur þar gistiheimili. Steinsnar er milli húsanna. Sæmundur sagði aðkomu að gistiheimilinu og bílastæðum tekna burt og bílastæðin verða notuð af gestum safns Páls. Ómögulegt yrði að stækka gistiheimilið og hann myndi því verða af tekjum. Átroðningur safngesta á hlaði gistiheimilisins myndi ennfremur gera rekstur þess erfiðan.



Úrskurðarnefndin sagði hins vegar kæru Sæmundar vegna deiliskipulagsins of seint fram komna og hafnaði því sömuleiðis að ógilda byggingarleyfi vegna legsteinasafnsins. Sæmundur leitaði í framhaldinu til Umboðsmanns Alþingis sem segir ekki ljóst hvort nefndin hafi tekið formlega afstöðu til þess hvort umdeild auglýsing um samþykkt deiliskipulagsins hafi verið birt með fullnægjandi hætti:



„Hafði þetta álitaefni þó sérstaka og verulega þýðingu í því máli sem hér er til umfjöllunar, enda verður að telja að þegar hvort tveggja nafn svæðis sem deiliskipulag á að taka til sem og landnúmer þess er ranglega tilgreint í auglýsingu skipulagsins í Stjórnartíðindum hljóti að vakna umtalsverður vafi um það hvort slík birting geti talist fullnægjandi,“ segir í niðurstöðu umboðsmanns sem leggur fyrir úrskurðarnefndina að taka málið fyrir ef Sæmundur óskar þess og það mun hann þegar hafa gert.



Deilan stendur í raun um tvö hús; safnahúsið sem nú er verið að steypa upp og timburhús sem flutt var á staðinn eftir að deiliskipulagið var kært. Óljóst er hvor húsin þurfa að víkja falli málið á endanum Sæmundi í vil og Páli í óhag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×