Vegfarendur ættu að vera á varðbergi gagnvart hálku fram eftir morgni Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 22. október 2017 08:30 Margir íbúar á höfuðborgarsvæðinu þurftu að skafa í morgun. Vísir/Getty
Vegfarendur ættu að vera á varðbergi gagnvart hálku fram eftir morgni samkvæmt athugasemdum Veðurstofu. Búast má við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Mýrdal í kvöld og til morguns. Um næstu helgi má búast við slyddu eða snjókomu fyrir norðan. Í dag fer að hvessa af austri þegar líður á daginn samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Þessu fylgir rigning eða súld á köflum sunnan- og austantil á landinu, en annars verður víða þurrt. Víða allhvass vindur í nótt og bætir í úrkomu á suðaustanverðu landinu, en lægir og dregur úr vætunni undir hádegi á morgun. Rigning og strekkingsvindur fyrir norðan fram á kvöld á morgun, en lægir síðan og dregur úr rigningunni þar líka, síst þó á norðanverðum Vestfjörðum. Milt í veðri og víða 5 til 10 stiga hiti á morgun.Veðurhorfur á landinu næstu daga Vaxandi austlæg átt í dag, 8-18 í kvöld, hvassast syðst. Rigning eða súld með köflum S- og A-til, en annars þurrt að kalla. Hiti 3 til 10 stig að deginum, mildast syðra, en sums staðar vægt frost inn til landsins í fyrstu. Talsverð rigning SA-til fyrripartinn á morgun, en lægir og dregur úr vætu um og eftir hádegi, fyrst um landið sunnanvert, en norðantil annað kvöld. Milt í veðri.Á þriðjudag:Norðaustan 10-15 m/s á Vestfjörðum, en annars hægari austlæg átt. Víða dálítil rigning, en lengst af bjartviðri á V-landi. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig. Á miðvikudag: Norðaustan 8-13 m/s og dálítil rigning N- og A-til, en annnars bjartviðri. Hiti yfirleitt 3 til 8 stig. Á fimmtudag: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum framan af degi, en síðan suðvestanátt með vætu S- og V-til. Áfram milt í veðri. Á föstudag: Líkur á vestan- og suðvestanátt með rigningu, einkum S- og V-lands. Milt í veðri. Á laugardag: Útlit fyrir ákveðna norðanátt með slyddu eða snjókomu á N-verðu landinu, en bjartviðri syðra og kólnandi veður.
Veður Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira