Logi segir skilið við 365 Stefán Ó. Jónsson skrifar 11. október 2017 06:38 Logi Bergmann hóf störf hjá Stöð 2 árið 2005.
Fjölmiðlamaðurinn Logi Bergmann Eiðsson, sem hefur um árabil lesið fréttir og stýrt sjónvarps- og útvarpsþáttum hjá 365 Miðlum, hefur náð samningum við útvarpsstöðina K100. Fram kemur í Morgunblaðinu, sem er í eigu Árvakurs rétt eins og K100, að Logi verði í dagskrárgerð á stöðinni ásamt því að starfa á ristjórn blaðsins. Þá sé jafnframt í undirbúningi framleiðsla á innlendu sjónvarpsefni og dagskrárgerð með Loga. Hann hefur áður unnið á Morgunblaðinu, hóf þar störf árið 1988 áður en hann söðlaði um og flutti fréttir af íþróttum hjá Ríkisútvarpinu. Logi segist kveðja samstarfsmenn sína hjá 365 með söknuði en að þetta sé „fínn tími“ fyrir sig að prófa eitthvað nýtt. Jóhanna Margrét Gísladóttir, dagskrárstjóri Stöðvar 2, segir það „ekkert nýtt að aðrir fjölmiðlar ráði starfsfólk frá okkur til starfa. Hins vegar er ljóst að Logi er með skriflegan tólf mánaða uppsagnarfrest og að auki 12 mánaða samkeppnisákvæði sem hann þarf að sjálfsögðu að virða.“ Það stangast á við það sem fram kemur í frétt Morgunblaðsins, þar segir að ráðning Loga taki strax gildi og að hann hafi þegar hafið störf fyrir fyrirtækið.
Fjölmiðlar Mest lesið Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Segja markaðstorg blóðmjólka fyrirtæki Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Sjá meira