Formúla 1

Lewis Hamilton á ráspól á Monza

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton á Mercedes var lang fljótastur í dag.
Lewis Hamilton á Mercedes var lang fljótastur í dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes verður á ráspól á morgun. Hann eignaði sér metið um fjölda ráspóla á ferlinum og er nú einn með 69.

Lance Stroll á Williams verður við hlið Hamilton eftir ótrúlegan endi á maraþon tímatöku sem tók næstum 4 klukkustundir að klára.

Red Bull menn voru í öðru og þriðja sæti en þurfa að taka út refsingu og Stroll verður því annar og Esteban Ocon þriðji á Force India á morgun.

Tímatakan fór fram á blautri Monza brautinni. Það hafði ekki rignt á brautinni síðan í júlí.

Fyrsta lota

Romain Grosjean á Haas féll úr leik þegar hann missti bílinn upp spól á beinum kafla. Tímatakan var stöðvuð þegar 13 mínútur og 31 sekúnda var eftir af fyrstu lotu.

Grosjean hafði kvartað yfir því að tímatakan var ræst í þessum aðstæðum. Það var mikið bleyta á brautinni. Grosjean var hins vegar á um 50 km/klst meiri hraða en flestir aðrir sem fóru þarna í gegn. Grosjean mistókst að lesa aðstæður.

„Ég get ekki sagt mikið þegar ég er á beinum kafla og flýt upp. Bíllinn bara varð stjórnlaus. Við hefðum aldrei átt að fara af stað út á brautina, aðstæður voru ekki boðlegar,“ sagði Grosjean eftir að hann féll úr leik í tímatökunni.

Tímatökunni var frestað um tvær klukkustundir og 40 mínútur.

Allir ökumenn komu út á regndekkjum. Vettel og Fernando Alosno voru fyrstir til að skipta yfir á mill-regndekk. Aðrir fylgdu svo í kjölfarið.

Í fyrstu lotu féllu út: Sauber ökumennirnir, Haas ökumennirnir og Jolyon Palmer á Renault. Bottas var fljótastur en Hamilton annar. 

Sebastian Vettel gat ekki gefið aðdáendum Ferrari mikið til að gleðjast yfir í dag.Vísir/Getty
Önnur lota

Það var mismunandi á hvaða dekkjum ökumenn hófu aðra lotuna á. Það var um það bil skipt til helminga hvort menn voru á milli-regndekkjum eða grófari regndekkjum.

Þegar á leið fór brautin að þrona og ökumenn að setja hraðari tíma á hverjum hring. Almennt skiptu ökumenn yfir á milli-regndekkin.

Þeir sem féllu út í annarri lotu voru: Sergio Perez á Force India, Nico Hulkenberg á Renault, Fernando Alonso á McLaren og Toro Rosso ökumenn.

Þriðja lota

Brautin tók að blotna aftur enda fór að rigna. Þeir sem lögðu af stað á milli-regndekkjum komu inn til að taka grófari regndekk.

Aðstæður á brautinni bötnuðu hratt og hraðasti tíminn batnaði með næstum hverjum ökumanni sem lauk hring.

Mikla breytingar urðu undir lokin en Hamilton stóð uppi sem hraðasti maður dagsins.

Hér að neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti. 


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Baráttan harðnaði í Belgíu

Lewis Hamilton vann belgíska kappaksturinn um helgina. Með því saxaði hann forskot Sebastian Vettel í heimsmeistarakeppni ökumanna niður um helming.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×