Smiðnum veitt skaðleysi fyrir að leggja parket á blaut gólfin Sigurður Mikael Jónsson skrifar 6. september 2017 05:00 Skrifstofur OR. Vesturhúsið stendur autt, enda talið svo gott sem ónothæft sökum raka og myglu. vísir/vilhelm „
Ég varaði við þessu og það var gert lítið úr mér. Þá fékk ég uppáskrifað að ég myndi aldrei bera ábyrgð á þessu,“ segir húsasmíðameistarinn Sigurður Waage, sem sá um að leggja parket í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur þegar þær voru byggðar. Sigurður staðfestir að honum hafi verið gert að leggja parket á hráblaut gólf vesturhúss höfuðstöðvanna og að þeim sem stýrðu framkvæmdunum hafi legið svo á að þeir voru reiðubúnir að fría hann ábyrgð af verkinu. Slík var pressan við að fresta ekki opnun hússins. Sigurður segist hafa varað við gólfum vesturhússins á fundi undirverktaka á byggingartímanum, en þær áhyggjur voru slegnar út af borðinu. Frásögn Sigurðar varpar frekara ljósi á hroðvirkni við byggingu höfuðstöðva OR sem leitt hefur til þess að vesturhúsið er talið svo gott sem ónothæft sökum raka og myglu. Svo virðist sem raki hafi ekki aðeins átt greiða leið inn um útveggina, heldur hafi gólfin verið vandamál frá upphafi. Gólf vesturhússins eru frábrugðin hefðbundnari steyptum gólfum eins og er að finna í austurhúsi OR-hússins. Sigurður segir gólfin samanstanda af trapisustálgrind með lagnarennum sem síðan hafi verið steypt í. „Ég var ekki sáttur við að leggja ætti rakavarnarlag ofan á blaut gólfin. Þú lokar ekki rakann inni því allt efni sem við byggjum úr þarf súrefni. Það er eðlilegt að það sé raki en hann verður að komast einhvers staðar út.“ Álitið sem Sigurður bar upp á fundi undirverktaka var eins og hann orðar það að „gólfin yrðu aldrei í lagi“ ef það yrði stálskúffa undir og rakavarnarlag yfir þeim. „Ég var bara jarðaður. Ég sagði að ég gæti ekki borið ábyrgð á þessu og lagði til að leggja teppi í ár meðan gólfið næði eðlilegum raka. Þá sagði eftirlitsverkfræðingur við mig: „Við erum hér til að leysa málin, drengur,“ og með því var það afgreitt,“ segir Sigurður. „Ég sagði að ég myndi vilja fá yfirlýsingu um að ég bæri enga ábyrgð á þessum gólfum því þau yrðu alltaf sjúk. Sem ég og fékk.“ Svo fór að skipta þurfti um gólfefnin skömmu eftir að húsið var tekið í notkun árið 2003. Sigurður hafnaði því að koma að endurlagningunni. Gólf vesturhússins fengu aldrei að jafna sig og þorna almennilega. Sigurður minnist þess að hafa eitt sinn borað upp í gólfið til að sýna rakann. „Þú gast farið í sturtu undir þessu. Það lak í tíu mínútur. En ennþá héldu þeir fram að þetta væri í lagi.“ Minnst var á lagningu parketsins á hráblaut gólf OR-hússins í skýrslu úttektarnefndar um OR árið 2012 í vitnisburði Ólafs Jónssonar, lögfræðings og fyrrverandi ritara stjórnar fyrirtækisins. Ekki hafi mátt fresta opnun hússins. „Þetta voru eins og fjallgarðar,“ sagði Ólafur sem kallaði húsið hönnunarslys. Sigurður tekur undir það. Tillaga hans með teppið hefði kannski hjálpað gólfunum en síðan hafi komið í ljós að útveggirnir voru ónýtir. „En ekki gleyma því að raki úr gólfunum leiðir út í þessa veggi. Í austurbyggingunni er bara venjulegt gólf, engin stálkápa undir og þar er allt í lagi. En hin gólfin eru helsjúk, vegna þess að þar er röng hönnun.“ Hjá OR fékkst staðfest bæði að Sigurði hafi verið veitt skaðleysi og að skipt hafi verið um parket fljótlega eftir að húsið var tekið í notkun á hluta hússins en annars staðar, þar sem það hafi verið farið að bólgna, hafi það verið fest niður í gólfplötuna. Byggingarstjórinn vilji þó meina að allt hafi verið með felldu með lagninguna.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Viðgerð vesturhúss á við launakostnað tíu leikskóla Ódýrasta og raunhæfasta viðgerðin á vesturhúsi höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur kostar á við launakostnað allra starfsmanna tíu leikaskóla í Reykjavík í fyrra. 1. september 2017 07:00 Útveggirnir kostuðu hundruð milljóna Útveggjakerfið sem var hannað fyrir hús Orkuveitu Reykjavíkur kostaði yfir tvö hundruð milljónir. Óháður dómkvaddur matsmaður mun skera úr um hvort kerfið hafi verið ranglega sett upp. 29. ágúst 2017 06:00 Tjón vegna rakaskemmda í höfuðstöðvum Orkuveitunnar nemur milljörðum króna Vesturhúsið er illa farið af rakaskemmdum og mjög dýrt að gera við það. 25. ágúst 2017 15:45 Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Innlent Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Innlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar ríkislögreglustjóra til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Sjá meira
Viðgerð vesturhúss á við launakostnað tíu leikskóla Ódýrasta og raunhæfasta viðgerðin á vesturhúsi höfuðstöðva Orkuveitu Reykjavíkur kostar á við launakostnað allra starfsmanna tíu leikaskóla í Reykjavík í fyrra. 1. september 2017 07:00
Útveggirnir kostuðu hundruð milljóna Útveggjakerfið sem var hannað fyrir hús Orkuveitu Reykjavíkur kostaði yfir tvö hundruð milljónir. Óháður dómkvaddur matsmaður mun skera úr um hvort kerfið hafi verið ranglega sett upp. 29. ágúst 2017 06:00
Tjón vegna rakaskemmda í höfuðstöðvum Orkuveitunnar nemur milljörðum króna Vesturhúsið er illa farið af rakaskemmdum og mjög dýrt að gera við það. 25. ágúst 2017 15:45