Breytingar gerðar á skipulagi sölu- og markaðssviðs Icelandair Atli Ísleifsson skrifar 8. júní 2017 07:40 Einar Páll Tómasson, Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir, Jón Skafti Kristjánsson, Sarah Unnsteinsdóttir og Þórdís Anna Oddsdóttir. Icelandair
Nýtt skipulag tekur gildi á sölu- og markaðsviði Icelandair í dag. Í tilkynningu frá Icelandair segir að ábyrgð á sölu- og markaðsmálum verði í auknum mæli færð heim til Íslands og millistjórnendum fækkað á erlendum starfstöðvum fyrirtækisins. „Þessi ábyrgð mun færast undir sjö svið sem eru: Markaðsmál, Sala- og þjónusta um borð, Tekjustýring, Sölusvið, Þjónustuver, Söludreifing og nýtt svið sem undirstrikar stefnu félagsins og ber heitið Notenda- og þjónustuupplifun.“ Í nýju skipulagi munu eftirfarandi einstaklingar taka við nýjum hlutverkum:„Jón Skafti Kristjánsson mun taka við sem forstöðumaður Markaðsdeildar og Markaðssamskipta hjá Icelandair. Jón hefur gegnt stöðu vörumerkjastjóra Icelandair frá 2015 en starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Icelandair Cargo á árunum 2013 – 2015. Meðfram námi á árunum 2011 – 2013 starfaði hann í sölu og sérverkefnum hjá Icelandair Cargo. Jón er með MSc. í alþjóðamarkaðsfræði og stjórnun frá Copenhagen Business School og BSc. í viðskiptafræði með áherslu á markaðsmál frá Háskólanum í Reykjavík.Þórdís Anna Oddsdóttir mun taka við sem forstöðumaður Tekjustýringar. Þórdís Anna hóf störf hjá Icelandair árið 2013 sem verkefnastjóri á fjármála- og rekstrarstýringarsviði. Frá 2015 hefur hún starfað sem forstöðumaður sölu og þjónustu um borð. Áður starfaði hún sem ráðgjafi hjá Statoil í Danmörku 2010 – 2012 og á árunum 2007 – 2009 við áhættustýringu hjá Straumi Fjárfestingarbanka. Þórdís Anna er með MSc. í iðnaðarverkfræði frá Georgia Institute of Technology og BSc. í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands auk þess að vera með próf í verðbréfamiðlun.Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir mun taka við sem forstöðumaður hins nýja sviðs, Notenda- og þjónustuupplifun hjá Icelandair. Ingibjörg hóf störf hjá Icelandair árið 2004 sem flugfreyja. Á árunum 2005-2007 var Ingibjörg Ásdís verkefnastjóri vef- og markaðsmála og frá 2007 – 2010 sá hún um samningagerð og samskipti við fjármálastofnanir og banka fyrir hönd Icelandair Saga Club. Frá 2010 – 2016 starfaði hún sem forstöðumaður Customer Loyalty og Icelandair Saga Club og frá 2016 hefur Ingibjörg starfað sem svæðisstjóri Icelandair á Íslandi. Hún er með BSc. Í viðskiptafræði og MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.Einar Páll Tómasson mun taka við sem forstöðumaður Sölusviðs. Hann hefur verið forstöðumaður Markaðsdeildar og viðskiptaþróunar frá 2016. Einar Páll hóf störf hjá Icelandair árið 2005 sem sölustjóri í Hollandi. Árið 2006 tók hann við sem svæðisstjóri fyrir mið-Evrópu og árið 2008 sem svæðisstjóri fyrir meginland Evrópu. Á árunum 1999 – 2005 var Einar Páll markaðsstjóri MasterCard á Íslandi og var auk þess fulltrúi í "Branding & Sponsorhsip Work Group" hjá MasterCard í Evrópu. Einar Páll er með BSc í viðskiptafræði frá BI Norwegian Business School með áherslu á alþjóðamarkaðsfræði og stjórnun.Sarah Unnsteinsdóttir mun taka við sem forstöðumaður Þjónustuvers. Sarah hóf störf á söluskrifstofu Icelandair árið 1998. Á árunum 2001 – 2005 starfaði hún sem sérfræðingur og verkefnastjóri hjá Amadeus í Frakklandi. Á árunum 2005 – 2012 starfaði hún sem deildarstjóri í net dreifikerfum Icelandair. Frá 2012 – 2016 starfaði hún sem yfirmaður þjónustu á samfélagsmiðlum. Sarah er með BA í frönsku frá Háskóla Íslands og hefur sótt námskeið á háskólastigi í stærðfræði og stjórnendaþjálfun Icelandair Group.Árni Sigurðsson, sem verið hefur forstöðumaður Söludreifingar frá árinu 1996 mun áfram gegna því hlutverki. Hann hefur starfað hjá félaginu frá 1976 og er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Óráðið er í stöðu forstöðumanns Sölu- og þjónustu um borð,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Nýr Peugeot E-3008 rafbíll frumsýndur í Brimborg Samstarf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira