Glamour

Jenner-systurnar selja skóna sína á Íslandi

Ritstjórn skrifar
Það er óhætt að segja að þær Kendall og Kylie Jenner eru einar frægustu systur í heimi í dag, yngstu Kardashian systurnar.

Nú reyna þær fyrir sér á nýjum slóðum en þær hafa hannað skó undir sínu eigin nafni - Kendall + Kylie. Um er að ræða tvær týpur af skóm sem verða frumsýndar í GS Skóm á morgun kl. 11.00, bæði í Kringlunni og Smáralind. 

Áhugavert en hingað til hefur allt sem þessar systur snerta orðið að gulli, Kendall með sigra sína á tískupallinum og Kylie með förðunarvörur sínar sem eru að tröllríða öllu. 

Sumarskórnir í ár? Við höldum það nú enda þægindi í fyrirrúmi. 

Þessir fara í sölu á morgun kl 11.00 í GS Skór Kringlunni og Smáralind Mjög takmarkað magn

A post shared by GS SKÓR (@gs_skor) on


Tengdar fréttir






×