Sævar Freyr ráðinn bæjarstjóri á Akranesi Birgir Olgeirsson skrifar 14. mars 2017 10:00 Sævar tekur við starfinu af Regínu Ásvaldsdóttur sem nýlega var ráðin sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Vísir/Vilhelm
Sævar Freyr Þráinsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri á Akranesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað en Sævar lét af störfum sem forstjóri 365 miðla í morgun og mun hefja störf sem bæjarstjóri í dag. Bæjarstjórn Akraness tók ákvörðun um að ganga til samninga við Sævar á lokuðum fundi 28. febrúar síðastliðinn. Tilkynnt var í Kauphöllinni í morgun að Vodafone hefði gengið frá samkomulagi um kaup á rekstri ljósvaka- og fjarskipta rekstri 365 ásamt starfsemi visir.is. Sævar er viðskiptafræðingur að mennt og hefur langa og farsæla reynslu af stjórnun. Hann starfaði sem forstöðumaður og framkvæmdastjóri hjá Símanum um margra ára skeið þar sem hann bar meðal annars ábyrgð á þróun, sölu, markaðsmálum, vörustjórnun, viðskiptastýringu og gagnalausnum. Hann varð forstjóri Símans árið 2007 og gegndi því starfi þar til hann tók við forstjórastöðu hjá 365 miðlum. Sævar á sæti í framkvæmdastjórn viðskiptaráðs og hefur gengt stjórnarformennsku meðal annars hjá fyrirtækjunum Sensa og On-Waves og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja sem tengjast fjarskiptamálum og hugbúnaði. Sævar Freyr hefur tekið með virkum hætti þátt í samfélags- og menningarmálum á Akranesi en hann er varaformaður knattspyrnufélags Íþróttabandalags Akraness, varaformaður Vesturlandsvaktarinnar sem eru hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar Vesturlands og stjórnarmaður í góðgerðarfélaginu, Club 71. Þá hefur hann átt sæti í atvinnumálanefnd kaupstaðarins og í stjórn Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar. Sævar Freyr er giftur Hafdísi Hannesdóttur geislafræðingi og eiga þau þrjú börn á aldrinum 13 til 21 árs. Sævar hefur störf sem bæjarstjóri á Akranesi í dag.Sævar Freyr mætti í Bítið í morgun og ræddi breytingar morgunsins.
Tengdar fréttir Kaup Vodafone á 365 miðlum undirrituð Vodafone kaupir allar eignir og rekstur 365 miðla, að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins og tímaritsins Glamour. Vísir fylgir með í kaupunum. 14. mars 2017 08:56 Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira
Kaup Vodafone á 365 miðlum undirrituð Vodafone kaupir allar eignir og rekstur 365 miðla, að undanskildum eignum er varða útgáfu Fréttablaðsins og tímaritsins Glamour. Vísir fylgir með í kaupunum. 14. mars 2017 08:56