Norðmenn fyrstir í undanúrslitin Tómas Þór Þórðarson skrifar 24. janúar 2017 17:32 Kristian Bjornsen fagnar í dag. vísir/epa
Norðmenn komust í dag fyrstir liða í undanúrslit á HM 2017 í handbolta þegar liðið vann auðveldan sigur á Ungverjalandi, 31-28. Lokatölur leiksins gefa ekki rétta mynd af leiknum því Noregur var með algjöra yfirburði frá upphafi til enda. Norska liðið var sjö mörkum yfir í hálfleik, 17-10, og náði mest níu marka forskoti í seinni hálfleik, 29-20. Ungverska liðið, sem lagði Ólympíumeistara Danmerkur í 16 liða úrslitum, klóraði í bakkann undir lokin og lagaði stöðuna. Espen Lie Hansen var markahæstur Noregs með sex mörk úr tólf skotum en þeir Kent Robin Tönnesen og Sander Sagosen skoruðu báðir fimm mörk. Torbjorn Bergerud varði fjórtán skot í markinu og var með 34 prósent hlutfallsmarkvörslu. Noregur komst í raun ekki á HM því liðið tapaði í umspili síðasta sumar en var sent bakdyraleiðina til Frakklands. Nú er liðið búið að fá nokkuð þægilega leið í undanúrslitin en það lagði Makedóníu í 16 liða úrsiltum. Þetta er annað stórmótið í röð sem Norðmenn komst í undanúrsilt en það gerðu þeir líka á EM í Póllandi á síðasta ári. Noregur fær annað hvort Króatíu eða Spán í undanúrslitum.
HM 2017 í Frakklandi Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira