Múslimastúlka myrt á leið heim af bænastund Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. júní 2017 22:33 Nabra Hassanen var myrt í bænum Sterling í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Skjáskot/Google Maps
Darwin Martinez Torres er grunaður um morðið á stúlkunni.Vísir/AFP Nabra Hassanen, sautján ára unglingsstúlka, fannst látin í Virginíu-fylki í Bandaríkjunum á sunnudag en tilkynnt hafði verið um hvarf hennar þá um morguninn. Darwin Martinez Torres er grunaður um morðið á henni en hann var leiddur fyrir rétt í dag. Lögregluyfirvöld segja morðið ekki rannsakað sem hatursglæp. Reuters greinir frá. Martinez, sem er 22 ára gamall, var í bíl sínum er hann lenti í útistöðum við stúlkuna og vinkonur hennar rétt fyrir sólarupprás á sunnudag í bænum Sterling í Virginíufylki í Bandaríkjunum. Hann steig þá út úr bílnum og réðst á stúlkuna en hann var ákærður fyrir morðið á henni í dag. Hassanen og vinkonur hennar voru á leið heim af næturlangri bænastund vegna Ramadan-hátíðarinnar sem nú stendur yfir. „Það gerðist eitthvað og hann reiddist,“ sagði talsmaður lögreglunnar í Fairfax-sýslu, Tawny Wright. „Hópurinn tvístraðist aðeins. Það vildi svo til að fórnarlambið var næst honum og hann réðst á hana.“ Vinkonur stúlkunnar leituðu hjálpar í moskunni sem þær höfðu sótt um nóttina. Martinez var handtekinn nokkrum klukkutímum síðar en lík stúlkunnar fannst í nærliggjandi tjörn. Don Beyer, þingmaður Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vottaði fjölskyldu Hassanen samúð sína í dag.Our hearts break for the family, friends and fellow congregants of Nabra Hassanen.— Rep. Don Beyer (@RepDonBeyer) June 19, 2017 Stúlkan, Nabra Hassanen, og vinkonur hennar eru sagðar hafa klæðst abaya, kjól sem telst til hefðbundins klæðnaðar múslimakvenna. Óttast er að Martinez hafi ráðist á Hassanen vegna þess að hún var múslimi. Talsmaður lögreglu á svæðinu sem fer með rannsókn málsins þvertekur þó fyrir að morðið flokkist sem hatursglæpur. „Ekkert bendir til þess að ráðist hafi verið á stúlkuna eða hópinn sem hún var í vegna þess hverjar þær eru eða hvaða trúarbrögð þær aðhyllast.“
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira