Orka náttúrunnar tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna Samúel Karl Ólason skrifar 27. september 2017 16:05 Vörumerkið Orka náttúrunnar er ungt en það var fyrst búið til í ársbyrjun 2014 eftir lögbundna aðgreiningu sérleyfis- og samkeppnisþátta í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur. Vísir
Orka náttúrunnar hefur verið tilnefnt til alþjóðlegu CHARGE vörumerkjaverðlaunanna, sem besta vörumerkið í flokki grænnar orku. ON er eina íslenska fyrirtækið sem tilnefnt er í flokknum og keppir þar við fjögur erlend vörumerki. Besta vörumerkið að mati fjölmennrar alþjóðlegrar dómnefndar verður útnefnt 10. október næstkomandi. „Við erum stolt af þessari tilnefningu. Þarna eru margir kallaðir en fáir útvaldir og það er frábært að fá hvatningu af þessu tagi í þeim mikilvægu verkefnum sem ON vinnur að,“ segir Áslaug Thelma Einarsdóttir, forstöðumaður einstaklingsmarkaðar ON, í tilkynningu. „Við höfum hvatt eindregið til rafbílavæðingar hér á landi – bæði í orði og í verki – og vörumerki ON er orðið óaðskiljanlegt þeirri þróun. Rafbílabyltingin getur orðið eftirmynd hitaveitubyltingarinnar sem var góð fyrir umhverfið, góð fyrir veskið og góð fyrir orkusjálfstæði þjóðarinnar. Fyrir það vill ON standa og tilnefningin gefur til kynna að við séum á réttri braut.“ Hún segir einnig að samkeppni á raforkumarkaði fari vaxandi og vörumerkjaþróun skipti sífellt meira máli. Til marks um það sé vaxandi aðsókn að alþjóðlegu CHARGE ráðstefnunni sem haldin verður 9.-10. október í Hörpu en í tengslum við hana verða CHARGE verðlaunin veitt. Vörumerkið Orka náttúrunnar er ungt en það var fyrst búið til í ársbyrjun 2014 eftir lögbundna aðgreiningu sérleyfis- og samkeppnisþátta í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur. ON rekur þrjár virkjanir, selur rafmagn til um helmings landsmanna og aflar um helmings heita vatnsins í hitaveituna á höfuðborgarsvæðinu. Í tilkynningunni segir einnig að ON hafi vakið athygli verk fyrirtækisins í uppbyggingu innviða fyrir rafbíla. Nú hefur verið komið fyrir 17 hraðhleðslustöðvum víða um land og er stefnt á að það verði tuttugu fyrir árslok.
Mest lesið Ísland að detta úr tísku Viðskipti innlent „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Viðskipti innlent Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Semja um markaðssetningu verðmæts augnlyfs „Árstíðarsveifla“ ástæða 57 uppsagna Ísland að detta úr tísku Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Sjá meira