Ég er búinn að gúggla
gramsa og pæla
Ég veit hvað er rétt
og ég veit hvað er þvæla
Fólkið er fífl
það hver maður sér
því mannskrípin eru
ekki sammála mér
Milljónir kusu
manngreyjið Trump
Moðhausar mærast
þann peningastrump
Að aðhyllast hann
sem mér finnst ei rétt
eru öfgar sem ég
geri að forsíðufrétt
Internetið er kastalinn minn
Minn réttarsalur
og rafmagnsstóllinn
Ég lít yfir lýðinn
sem lúta skal mér
og leita að þeim
sem ei sammælast mér
Hver trúir á himnavist
helvíti og engla?
Í vitsmunastöðvarnar
vantar víst tengla
Fólk trúir að Guð
hafi galdrað fram sál
geðveikt það vitnar
í Pétur og Pál
Klókur ég er
og kann æði mikið
Kokhraustur held ég
um kennaraprikið
Auðmýktin ætluð er
auðtrúa greyjum
Þá aumingja árétta
með fussum og sveijum
Innfluttan múslima
hræðist þá annar
og óttast hið versta
ef gerast þeir grannar
Heimskinginn hryðjuverk
tengir við trú
í hálfvitahætti hans
finnst ei heil brú
Af tungu minni
tær viskan drýpur
Tigna skal þann
sem trúr hana sýpur
Ég þoli það fólk
sem þekkist mín mið
en þöngulhausum
ég gef engan grið
Ég skipti mér af
ef skoðanir skarast
Orðaskambyssu
mína
skalt varast
Ef eigi í málefnum
meðvirkist mér
Þá markvisst ég gera
mun lítið úr þér
Ég auðvitað hef
alltaf rétt fyrir mér
Allt svo augljóst
í kollinum er
Ei þarf ég annað
en mitt sjónarhorn
Öndverð meiði
eru fáheyrð og forn
Ég er búinn að gúggla
gramsa og pæla
Ég veit hvað er rétt
og ég veit hvað er þvæla
Fólk er fífl
það hver maður sér
því mannskrípin eru
ekki sammála mér
Sumir leyfa sér að kalla aðra vitleysinga, fávita, fífl eða öðrum niðrandi nöfnum opinberlega. Ég heyrði stjórnmálamann úr röðum Pírata gera slíkt í Kryddsíldinni um daginn, um leið og hann fullyrti að ALLIR væru sammála honum.
Samskiptakerfi og fjölmiðlar minna oft á skotgryfjur þar sem skotið er úr leyni á venjulegt fólk sem leyfir sér að viðra skoðanir sínar. Ekki er látið nægja að gagnrýna hegðun eða skoðanir málefnalega. Það þarf að ráðast að persónunni líka og gera lítið úr henni.
Að nota liggjandi mann sem stall til að lyfta sjálfum sér upp er að mínu mati ekki virðingarvert. Manneskja sú er jafn lítil þótt foróttar iljar hennar hvíli á andliti annarar manneskju sem búið er að skella í skítinn.
„Fjölbreytileiki“ er orð sem forsetinn notaði í ávarpi sínu til að vísa í framtíð þar sem manneskjur bera virðingu hvor fyrir annari, þrátt fyrir mismunandi lífsviðhorf.
Þannig 2017 vill ég....
...en kannski ekki besservisserarnir.