Viðar Örn: Auðvitað kitlar að spila í Meistaradeildinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. mars 2017 22:15
Viðar Örn Kjartansson segir að honum líði vel í Ísrael, þar sem hann hefur raðað inn mörkum með Maccabi Tel Aviv að undanförnu. Viðar er alls kominn með ellefu mörk í 24 leikjum í öllum keppnum með Maccabi og kominn með alls 15 mörk í 24 leikjum í deildarkeppninni, þar sem hann er markahæstur. „Liðsfélagarnir segja að þetta sé eitt erfiðasta landið til að aðlagast. Maður er dæmdur strax á fyrstu æfingunni,“ sagði Viðar Örn í samtali við Vísi. „Þetta byrjaði mjög vel hjá mér en svo kom lægð, bæði hjá mér og liðinu. En árið 2017 hefur verið frábært og allt búið að ganga upp. Ég er mjög sáttur með það,“ sagði hann enn fremur. Viðar tekur undir að sjálfstraustið sé í góðu lagi hjá honum og að honum líði eins og að hann geti skorað í hverjum leik. „Framherjar nærast á því. Allt verður auðveldara þegar sjálfstraustið er mikið og það má segja að það sé í góðu lagi núna.“ Hann gerir engar kröfur um sæti í byrjunarliðinu og leyfir þjálfurunum um að velja það. En hann vonast auðvitað til þess að fá tækifæri þegar Ísland mætir Kósóvó í Albaníu á föstudagskvöldið. Fyrr í vetur var Viðar Örn orðaður við Zenit í Rússlandi, lið sem spilar reglulega í Meistaradeildinni. „Jú, auðvitað kitlar það en ég er hjá flottum klúbbi núna. Við erum í öðru sæti í deildinni og komnir í undanúrslit í bikar. Vonandi tökum við þessa tvo titla og svo sjáum við til hvað gerist.“
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti „Erum á ákveðinni vegferð” Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn „Besta kvöld lífs míns“ Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni „Erum á ákveðinni vegferð” Jafntefli í báðum leikjunum í Lengjudeildinni Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Allt í skrúfunni hjá liði Arnórs Ingva og Gísli lagði upp fyrir Halmstad Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador Kolbeinn fagnaði í Íslendingaslag í Gautaborg Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Harður stuðingsmaður Real Madrid: „Við elskum þessa keppni“ Fan Zone á hinum mikilvæga leik stelpnanna okkar á þriðjudaginn Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Cristiano Ronaldo grét eftir tap í gær Ekkert verður af kaupunum á Everton Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Courtois byrjar úrslitaleikinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Sjá meira