Oscar heiðraði þrennubróður sinn | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2017 12:00 Robertson vill sjá Westbrook vera valinn verðmætasti leikmaður tímabilsins. vísir/getty
Russell Westbrook, leikstjórnandi Oklahoma City Thunder, var heiðraður fyrir leik liðsins gegn Denver Nuggets í lokaumferð NBA-deildarinnar í nótt. Westbrook átti magnað tímabil en hann var með þrefalda tvennu að meðaltali í leik. Hann er aðeins annar leikmaðurinn í sögu NBA til afreka það. Hinn leikmaðurinn í þessum fámenna félagsskap, Oscar Robertson, var mættur til Oklahoma í nótt til að heiðra Westbrook. „Þegar Russell var á þessari vegferð fannst mér ég þurfa að vera hérna. Þetta sögulegt afrek hjá honum. Þið ættuð að vera stolt af honum,“ sagði Robertson við áhorfendur í Chesapeake Energy Arena. „Það er aðeins eitt að lokum: M-V-P,“ bætti Robertson við og vísaði þar til þess að Westbrook ætti að vera valinn verðmætasti leikmaður tímabilsins. Robertson var með þrefalda tvennu að meðaltali í leik tímabilið 1961-62 þegar hann lék með Cincinnati Royals. Robertson var með 30,8 stig, 12,5 fráköst og 11,4 stoðsendingar að meðaltali í leik það tímabil. Westbrook var með 31,6 stig, 10,7 fráköst og 10,4 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur. Hann var alls með 42 þrennur á tímabilinu, einni fleiri með Robertson náði fyrir 55 árum. Westbrook spilaði aðeins fyrri hálfleikinn gegn Denver í nótt. Hann skoraði fimm stig, tók fimm fráköst og gaf átta stoðsendingar í 105-111 tapi. Oklahoma mætir Houston Rockets í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.
NBA Tengdar fréttir Boston tryggði sér toppsætið | Þessi lið mætast í úrslitakeppninni Lokaumferð NBA-deildarinnar í körfubolta fór fram í nótt. 13. apríl 2017 10:21 Pippen: Tímabilið hjá Westbrook það besta sem ég hef séð Scottie Pippen, sem varð sexfaldur NBA-meistari með Chicago Bulls á sínum tíma, segir að tímabilið sem Russell Westbrook hefur átt sé það besta í sögunni. 31. mars 2017 17:00 Þrenna númer 42 hjá Russell Westbrook og Oscar á ekki lengur metið Russell Westbrook skrifaði NBA-söguna í nótt þegar hann náði sinni 42. þrennu á tímabilinu. Með því sló hann 55 ára met Oscar Robertson. Sögulegt tímabil varð því enn sögulegra hjá Westbrook. 10. apríl 2017 07:15 Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira
Boston tryggði sér toppsætið | Þessi lið mætast í úrslitakeppninni Lokaumferð NBA-deildarinnar í körfubolta fór fram í nótt. 13. apríl 2017 10:21
Pippen: Tímabilið hjá Westbrook það besta sem ég hef séð Scottie Pippen, sem varð sexfaldur NBA-meistari með Chicago Bulls á sínum tíma, segir að tímabilið sem Russell Westbrook hefur átt sé það besta í sögunni. 31. mars 2017 17:00
Þrenna númer 42 hjá Russell Westbrook og Oscar á ekki lengur metið Russell Westbrook skrifaði NBA-söguna í nótt þegar hann náði sinni 42. þrennu á tímabilinu. Með því sló hann 55 ára met Oscar Robertson. Sögulegt tímabil varð því enn sögulegra hjá Westbrook. 10. apríl 2017 07:15