Tætingslegu jólatré Rómaborgar líkt við klósettbursta Atli Ísleifsson skrifar 21. desember 2017 10:37 Barrnálarnar voru ekki lengi að falla af jólatré Rómarborgar á Feneyjatorgi. Vísir/Getty
Íbúar í Rómaborg hafa líkt og á síðasta ári hæðst að jólatré sem borgaryfirvöld hafa komið upp á Piazza Venezia. Trénu hefur ýmist verið líkt við reyttan fugl eða klósettbursta og segja íbúar tætingslegt tréð vera skýrt merki um hrörnun borgarinnar á síðustu árum. Kostnaður við uppsetningu trésins var um 50 þúsund evrur, um sex milljónir króna. Það er rúmlega tuttugu metrar á hæð og var flutt sérstaklega úr ítölsku Ölpunum. Í stað þess að gleðja íbúa og gesti borgarinnar líkt og ætlunin var hefur það hins vegar orðið að táknmynd um slælegan rekstur borgarinnar á síðustu árum. Eftir að trénu var komið upp þann 8. desember leið ekki á löngu þar til að barrnálarnar fóru að falla. Eftir stendur magurt tré sem hefur orðið skotspónn grínista og ósáttra borgarbúa.Sjá einnig: Íbúar dansks bæjar ýmist reiðir eða skellihlæjandi vegna jólatrés bæjarins Tréð hefur fengið viðurnefnið „Spelacchio“ sem í grófri þýðingu má nefna sjúskaður eða sköllóttur.Umræða hefur farið fram um hvað hafi nákvæmlega farið úrskeiðis. Talsmenn flutningsþjónustunnar segja tréð hafa verið í fullkomnu ásigkomulagi þegar því var skilað til höfuðborgarinnar frá Dólómítafjöllum, en ítalskir fjölmiðlar hafa heimildir fyrir því að það hafi ekki verið nægilega varið þegar það var flutt suður á bóginn. Andstæðingar Virginia Raggi, borgarstjóra Rómar, hafa einnig nýtt tækifærið og sagt tréð vera enn eitt dæmið um hrörnun borgarinnar þar sem almenningsgarðar hafa fallið í órækt og vegir verið í niðurníðslu.
Jól Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira