
Almenningur borgar alltaf fyrir skattahækkanir
Ekkert af forystufólki vinstriflokkanna hafa hins vegar haft áhuga eða getu til þess að benda á hvaða skatta eigi að hækka eða hvernig almenningur á að vera ónæmur fyrir þeim, en „einhverjir aðrir“ eiga að sögn að borga fyrir loforðaflauminn. Besta dæmið um þetta er frammistaða Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG, í leiðtogaumræðum og í forystusætinu á RÚV. Þar gat hún nær engu svarað þrátt fyrir að vera þráspurð um hvaða skatta hún ætlaði að hækka kæmist hún til valda eftir kosningarnar.
Málflutningur Katrínar er auðvitað með öllu óraunhæfur og ábyrgðarlaus vegna þess að hún hefur boðað aukin útgjöld og skattheimtu sem hleypur á tugum milljarða. Ekkert annað en stórauknar álögur á almenning munu duga til að greiða fyrir slíkan útgjaldaauka.
Almenningur mun borga brúsann
Fullyrðingin um að hægt sé að hækka skatta verulega án þess að það bitni á almenningi er mýta sem má annað hvort rekja til fáfræði eða blekkingar. Staðreyndin er sú að allar skattahækkanir bitna að endingu á almenningi, hvort sem þeim er beint gegn einstaklingum eða fyrirtækjum. Það þarf ekki nema grundvallarskilning á efnahagsmálum og einfalda söguskoðun til að sjá í gegnum mýtuna um að almenningur borgi ekki fyrir skattahækkanir.
Tökum skatta á atvinnulífið sem dæmi. Atvinnulífið er ekki annað en samstillt átak almennings til að viðhalda eða auka við lífskjör sín, sjá fjölskyldum sínum farborða og tryggja börnum sínum betri framtíð en foreldrarnir upplifðu sjálfir. Fyrirtæki eru enda félög sem þurfa að veita almenningi verðmæta þjónustu til að geta skilað eigendum sínum ávinningi, en til þess að það sé hægt þarf eðli máls samkvæmt bæði ánægt starfsfólk og viðskiptavini. Fyrirtækin geta ekki án almennings verið, og öfugt.
Fyrirtæki eru því ekki líflaus og andlitslaus fyrirbæri sem er hægt að skattleggja án þess að það bitni á almenningi. Almenningur er enda viðskiptavinir fyrirtækjanna, starfsmenn þeirra og eigendur, hvort sem er beint, í gegnum lífeyrissjóði eða með sparnaði sínum. Fyrirtækin eru fyrir vikið órjúfanlegur hluti af mannlegu samfélagi.
Skattahækkanir á atvinnulíf og fyrirtæki eru þess vegna skattahækkanir á eigendur þeirra, starfsmenn eða viðskiptavini. Almenningur borgar brúsann með hærra verði á vöru og þjónustu, lægri launum, færri störfum eða minni arðsemi af sparnaðinum. Þá er ónefnt svokallað allratap sem verður til við skattheimtu og dregur úr lífskjörum almennings.
Fjármagnstekjuskattar bitna harðast á heimilum
Sömu sögu má segja af skattahækkunum á fjármagnstekjur, eignir og sparnað. Almenningur borgar alltaf brúsann. Með hærri fjármagnstekjuskatti skapast hvati til að almenningur (og fyrirtæki) flytji fjármuni sína út úr íslensku efnahagslífi, sérstaklega þegar flutningur fjármagns er nú orðinn frjáls og engin gjaldeyrishöft lengur til að halda þeim innan landsteinanna.
Þegar það gerist þá minnkar geta atvinnulífsins til að fjárfesta í nýsköpun og veita almenningi fjölbreytt tækifæri til að finna getu sinni og sköpunarkrafti viðspyrnu. Að sama skapi hækkar verð á fjármagni þegar fjármagnstekjuskattar hækka. Það þýðir einfaldlega að vextir hækka og þar með afborganir af íbúðalánum, leiguverð o.s.frv.
Allt hefur þetta veruleg neikvæð áhrif á almenning. Að sjálfsögðu bitna slíkar skattahækkanir harðast á tekju- og eignalitlum fjölskyldum, sem geta ekki flutt sig eða sparnað fjölskyldunnar til annarra landa þar sem hagstæðari skattareglur gilda. Sömuleiðis er ungt fólk sem vill kaupa sínu fyrstu íbúð algjörlega berskjaldað fyrir slíkum sköttum, sem þýða að ennþá erfiðara getur verið að standast greiðslumat vegna hærri afborgana af íbúðalánum.
Sporin hræða
Þegar öllu er á botninn hvolft er það alltaf almenningur sem borgar fyrir skattahækkanir. Blekkingaleikur vinstriflokkanna sem halda því blákalt fram að einhverjir aðrir muni borga er því sérstaklega ámælisverður. Almenningur mun bera þungann af þeim skattahækkunum sem boðaðar eru.
Almenningur er þar að auki ekki búinn að gleyma hrinu skattahækkana sem dundu á Íslendingum þegar skórinn kreppti hvað mest að þeim í kjölfar hrunsins. Þar fóru fremst Vinstri-græn, sem sátu í ráðherrastól í fjármálaráðuneytinu og eirðu engum með meira en 100 skatta- og gjaldahækkunum. Látum það ekki gerast aftur.
Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður.
Skoðun

Ertu klár?
Jakob Smári Magnússon skrifar

Kengúrur eða Þorskar: Hver forritar framtíð Íslands?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Börnin á Gaza eru ekki í fríi
Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir skrifar

Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir
Unnur Helga Óttarsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Brimrót og veðragnýr í alþjóðamálum
Árni Þór Sigurðsson skrifar

Forstjórinn stígur fram
Örn Pálsson skrifar

Lífsgæði íbúa Mosfellsbæjar skert
Regína Ásvaldsdóttir skrifar

Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út?
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Tilvera okkar er undarlegt ferðalag
Hópur meðlima No Borders skrifar

Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Það að þrá börn eða ekki
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Tímanna tákn?
Hólmgeir Baldursson skrifar

Hörmulegur atburður í flugstöð Leifs Eiríkssonar
Jón Pétursson skrifar

Kvótaverð, veiðigjald, fjárfesting og arðsemi í sjávarútvegi
Ásgeir Daníelsson skrifar

Getur Seljaskóli núna orðið símalaus skóli, Jóhanna?
Kristín Jónsdóttir skrifar

Gagnsæi og traust á raforkumarkaði
Einar S Einarsson skrifar

Ef þetta er rétt – hvað er þá rangt?
Anna Berg Samúelsdóttir skrifar

Hvað er þetta MG?
Júlíana Magnúsdóttir skrifar

Sjúkraþyrlu sem allra fyrst, kerfi sem veitir lífsbjörg
Gunnar Svanur Einarsson skrifar

Ríkisstofnun forherðist við gagnrýni
Björn Ólafsson skrifar

Bylting, bóla, bölvun - bull?
Brynjólfur Þorvarðsson skrifar

Eru smáþjóðir stikkfríar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Ákall
Valdimar Júlíusson skrifar

Á að leyfa eða halda áfram að banna?
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Íslenski fáninn fyrir samstöðu ekki mismunun
Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar

Jafnlaunabarnið og baðvatnið
Helga Sigrún Harðardóttir skrifar

Þér er boðið með, kæri félagi
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Púslið sem passar ekki
Ingibjörg Isaksen skrifar

Nei, það verður ekki að vera Ísrael, það er Ísrael
Einar Ólafsson skrifar

Kemur þín háskólagráða úr kornflakes pakka?
Davíð Már Sigurðsson skrifar