David Bonderman, stjórnarmaður í Uber, sagði að fleiri konur í stjórn myndi eingöngu verða til þess að það yrði „meiri kjaftagangur“ í fyrirtækinu. Þetta sagði hann á stjórnarfundi Uber, þar sem umræðuefnið var meðal annars bætt vinnustaðamenning. Hljóðupptaka af athugasemdum Bondermans lak í fjölmiðla. Í kjölfarið sagði hann sig úr stjórninni og sagði athugasemdirnar hafa verið „kæruleysislegar, óviðeigandi og óafsakanlegar“.
Málefni leigubílaþjónustunnar hafa verið mikið til umræðu síðustu misseri eftir að Susan Fowler, fyrrverandi starfsmaður Uber, sakaði yfirmenn sína um kynferðislega áreitni. Þá tilkynnti Travis Kalanick, forstjóri og einn stofnenda Uber, á þriðjudag að hann hygðist taka sér leyfi frá störfum. Þrjátíu starfsmönnum var vikið frá störfum á dögunum vegna rannsóknar á kynferðislegri áreitni innan fyrirtækisins.
Uber áfram til vandræða
Ólöf Skaftadóttir skrifar

Mest lesið



Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta
Viðskipti innlent


Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout
Viðskipti innlent

Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans
Viðskipti innlent

Síðasti dropinn á sögulegri stöð
Viðskipti innlent

Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili
Viðskipti innlent

Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic
Viðskipti erlent