Stökk úr 7,6 kílómetra hæð án fallhlífar og lenti í neti á jörðu niðri Heimir Már Pétursson skrifar 31. júlí 2016 09:24 Luke Aikins hitti á netið. Vísir/AFP
42 ára gamall Bandaríkjamaður varð í gær fyrstur manna til að stökkva án fallhlífar út úr flugvél í 7.620 metra hæð og lenda í neti á jörðu niðri. Luke Aikins á að baki um 18 þúsund fallhlífarstökk en í gær féll hann á 193 kílómetra hraða á klukkustund án fallhlífar í beinni útsendingu á Fox sjónvarpsstöðinni og fagnaði eiginkonu sinni og syni innilega eftir að hafa hitt á 330 fermetra net í Simi Valley í suðurhluta Kaliforníu. Aikins var enn hátt uppi eftir lendinguna og sagðist ekki eiga orð til að lýsa reynslunni en viðurkenndi að hann hafi verið stressaður fyrir stökkið. Litlu munaði að ekkert yrði af því vegna krafna um að hann bæri neyðarfallhlíf en fallið var frá þeirri kröfu skömmu fyrir stökkið. Aikins sagði að hann hefði hætt við ef hann hefði þurft að bera fallhlífina þar sem hún hefði aukið á hættuna vegna meiri þyngsla. Skipuleggjendur segja þetta heimsmet. Enginn maður hafi áður stokkið fallhlífarlaus úr eins mikilli hæð áður. Það var vinur Aikins sem fékk hugmyndina að stökkinu fyrir tveimur árum.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Innlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Fleiri fréttir Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Sjá meira