Jóhannes Rúnar segir sig úr stjórn Kaupþings Atli Ísleifsson skrifar 4. nóvember 2016 14:54 Jóhannes Rúnar Jóhannsson.
Hæstaréttarlögmaðurinn Jóhannes Rúnar Jóhannsson, sem setið hefur í stjórn Kaupþings og sat áður í skilanefnd og slitastjórn Kaupþings hefur ákveðið að segja sig úr stjórn félagsins frá og með 3. nóvember 2016. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kaupþingi. „Jóhannes Rúnar Jóhannsson var skipaður í skilanefnd í október 2008 í kjölfar þess að Kaupþing (þá Kaupþing banki hf.) varð ógjaldfært. Jóhannes var skipaður í slitastjórn Kaupþings í janúar 2012 í kjölfar þess að skilanefnd var lögð niður. Jóhannes gegndi lykilhlutverki í endurskipulagningu Kaupþings sem lauk í desember 2015 þegar nauðasamningur félagsins við kröfuhafa var endanlega staðfestur. Jóhannes sat í bráðabirgðastjórn Kaupþings fram til mars 2016 og frá þeim tíma í stjórn félagsins,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Jóhannesi Rúnari að eftir átta áhugaverð og krefjandi ár í vinnu fyrir Kaupþing, fyrst í slitameðferð félagsins, sem meðlimur í skilanefnd og síðar slitastjórn og síðan í kjölfar nauðasamnings Kaupþings, sem meðlimur í stjórn félagsins, þá hafi hann tekið ákvörðun um að snúa sér að öðrum verkefnum. „Mikill árangur hefur náðst á þeim tíma sem liðið hefur frá nauðasamningi Kaupþings og er félagið byrjað að greiða út til hagsmunaaðila þess og áætlanir liggja fyrir um hvernig undið verður ofan af starfsemi félagsins. Ég tel því að nú sé réttur tími fyrir mig að segja mig úr stjórn félagsins og leita á önnur mið. Ég er mjög stoltur af því sem við höfum áorkað hjá Kaupþingi og vil nota tækifærið til að þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að ná þeim árangri, ekki síst starfsmönnum Kaupþings,“ segir Jóhannes.
Mest lesið Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira