Vegna nefndar um dómarastörf Gunnlaugur Claessen skrifar 9. desember 2016 07:00 Vegna fyrirspurnar fréttastofu 365 um störf nefndar um dómarastörf, NUD. Nefnd um dómarastörf setti reglur í kjölfar gildistöku laga um dómstóla 1998 sem varða hlutafjáreign dómara og aukastörf þeirra. Reglurnar voru birtar í Stjórnartíðindum. Hvað varðar fyrst hlutafjáreign dómara þá eru lögin og reglurnar alveg skýr. Dómara ber sjálfum að eigin frumkvæði að tilkynna NUD um hlutafjáreign sína þegar slík eign verður til, hvort sem það gerist fyrir kaup, arf eða með öðrum hætti. Kjarni málsins er sá að þessi lagaskylda hvílir á dómaranum sjálfum og nefndin þarf ekki að halda uppi fyrirspurnum með reglulegu millibili. Þessi skylda er öllum dómurum kunn. Þrátt fyrir það gekk nefndin eftir því við dómarahópinn í upphafi hvort slíkum tilkynningarskyldum eignum væri til að dreifa. Í nokkrum tilvikum reyndist svo vera. Tilkynningar eftir það um hlutafjáreign dómara voru fáar. Ef engin sérstök viðbrögð urðu af hálfu nefndarinnar við slíkum tilkynningum mátti dómari ganga út frá því með réttu að ekki væru gerðar athugasemdir. Þessi sama lagaskylda hvílir á hverjum og einum dómara að upplýsa um aukastörf sín og fá leyfi fyrir þeim, ef undan eru skilin tiltekin störf sem aðeins eru tilkynningarskyld. Sumum aukastörfum er dómurum beinlínis óheimilt að sinna. Flest falla í þann flokk þar sem leyfi nefndarinnar er áskilið og þá óheimilt að sinna slíku fyrr en að fengnu leyfi. Enn önnur störf nefndarinnar lutu að kvörtunum aðila dómsmála á meðferð dómara á máli viðkomandi, en umfang sumra þeirra og skjalafjöldi gat orðið talsverður.Öll gögn í vörslu nefndarinnar Eftir að lokið var umfjöllun einstakra mála voru gögn þeirra lögð upp í tímaröð. Við starfslok í nefndinni 2010 kom ég skjalasafni hennar í hendur viðtakandi formanns. Fyrir mistök mín varð þá eftir lítill hluti skjalasafnsins. Skjalakassa, sem geymdi þau gögn, kannaði ég ekki fyrr en eftir starfslok mín í Hæstarétti og þá komu mistökin í ljós. Þessu greindi ég eftirmanni mínum í nefndinni frá fyrir alllöngu síðan. Gögnunum var hins vegar ekki komið á réttan stað fyrr en 4. desember sl. þegar eftir því var leitað. Í þeim reyndist vera eitt skjal sem snertir umfjöllun 365 miðla fyrr í vikunni, en það er tilkynning Markúsar Sigurbjörnssonar hrd. frá 2007 um sölu hlutafjár. Tilkynning Markúsar nokkrum árum fyrr um að hann hafi eignast hlutabréf fyrir arf mun vera í þeim hluta skjalasafnsins sem var afhentur 2010. Eftir þetta á að vera fullvíst að öll gögn, sem beint hefur verið til nefndarinnar eða sem orðið hafa til hjá henni, eru nú í vörslum nefndarinnar. Höfundur var formaður NUD frá 1998 til 2010. Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira