Tillaga um 90 prósent lækkun stjórnarlauna Glitnis felld ingvar haraldsson skrifar 16. mars 2016 14:10 Óttari hafði ekki erindi sem erfiði á aðalfundi Glitnis. vísir
Tillaga Óttars Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaganna um 90 prósent lækkun stjórnarlauna eignarumsýslufélagsins Glitnis HoldCo var felld á aðalfundi félagsins í dag. Því munu stjórnarmenn Glitnis, Tom Grøndahl og Steen Parsholt, fá sem samsvara 4,12 milljónum króna á mánuði og stjórnarformaðurinn, Mike Wheeler, 6,2 milljónir króna á mánuði. Þar að auki munu stjórnarmennirnir fá tæplega milljón króna greidda á dag vinni þeir umfram 72 daga á ári fyrir Glitni. Óttar bauð sig einnig fram til stjórnar Glitnis til að sýna fram á að hægt væri að fá hæft fólk til að starfa fyrir Glitni á þeim launum sem hann hafði lagt til. Hann naut hins vegar ekki stuðnings aðalfundar til þeirra starfa.Naut meiri stuðnings en hann bjóst við Tillaga Óttars um lækkun stjórnarlauna naut stuðnings 8,3 prósent þeirra sem greiddu atkvæði á fundinum. Óttar segir Íslendinga 5 prósent hluthafa í Glitni og því hafi tillagan notið meiri stuðnings en hann hafi búist við. „Þetta var miklu meira en ég átti von á, segir Óttar í samtali við Vísi.Stjórnarmenn gætu fengið milljarða greiðslur Þá var áætlun um hvatagreiðslur einnig samþykkt sem felur í sér að stjórendur og stjórnarnmenn Glitnis gætu fengið milljarða í sinn hlut. Áætlunin felur í sér að stjórnarmenn og stjórnendur Glitnis skipta með sér 20 prósent af greiðslum sem fáist umfram 1,17 milljarða evra og upp að 1,23 milljörðum evra. Stjórnendahópurinn fær svo 15,5 prósent af innheimtum umfram 1,23 milljarðar evra. Fari greiðslurnar upp í efri mörkin og nemi 1,23 miljarði evra skipta stjórnarmenn og stjórnendur Glitnis með sér 1,7 milljarði króna. Greiðslurnar gætu þó orðið mun hærri. Mike Wheeler, stjórnarformaður Glitnis á að fá í sinn hlut 26,9 prósent af greiðslunni. Þá fá hinir tveir stjórnarmennirnir, sem nú eru Tom Grøndahl og Steen Parsholt, 23,9 prósent upphæðarinnar. Stjórnin hefur einnig heimild til að semja við æðstu stjórnendur Glitnis um greiðslur upp á 26,1 prósent upphæðarinnar.
Tengdar fréttir Stjórnarmenn Glitnis gætu fengið milljarða bónusgreiðslur Stjórnarmenn Glitnis munu fá milljón á dag greidda vinni þeir umfram 72 daga á ári. 14. mars 2016 12:23 Leggur til 90 prósenta lækkun stjórnarlauna Glitnis Stjórnarlaunin eru "ósmekkleg og óviðeigandi“ að sögn Óttars Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaganna. 4. mars 2016 10:53 Mest lesið Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Himneskt ei meir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Sjá meira
Stjórnarmenn Glitnis gætu fengið milljarða bónusgreiðslur Stjórnarmenn Glitnis munu fá milljón á dag greidda vinni þeir umfram 72 daga á ári. 14. mars 2016 12:23
Leggur til 90 prósenta lækkun stjórnarlauna Glitnis Stjórnarlaunin eru "ósmekkleg og óviðeigandi“ að sögn Óttars Guðjónssonar, framkvæmdastjóra Lánasjóðs sveitarfélaganna. 4. mars 2016 10:53