
Katrín eða Bjarni
Vinstri græn setja fram ábyrga stefnu í ríksfjármálum þar sem bent er á það hvernig á að afla tekna á móti útgjöldunum. Þeir sem starfa með Vinstri grænum í ríkisstjórn verða að sýna ábyrgð í ríkisfjármálum, enda er það ein mikilvægasta undirstaða velferðarkerfisins.
Vinstri græn setja fram ábyrga sjálfbæra stefnu í atvinnumálum. Það gerist með því að leggja áherslu á skapandi greinar, leggja áherslu á að náttúran sé alltaf látin njóta vafans þegar kemur að ákvörðunum í atvinnumálum. Vinstri græn vilja kalla saman þjóðfundi þar sem fjallað verður um þróun atvinnugreinanna og þær rifnar upp úr gömlum kerfum og vanafari gagnslausar þrætuumræðu. Þetta á sérstaklega við um landbúnað og sjávarútveg.
Vinstri græn leggja áherslu á jöfnun lífskjara þannig að þeir sem eru ríkir leggi meira til samfélagsins, til þeirra sem standa veikari fótum. Vinstri græn vilja hækka skatta á auðlegð en afnema skatta á þá sem minnst mega sín og byrja á því að lækka og fella niður skatta af sjúklingum.
Vinstri græn vilja að þeir sem nýta auðlindirnar borgi gjald fyrir nýtingu þeirra til þess að jafna lífskjörin í landinu en líka til þess að staðfesta að þeir sem nýta auðlindirnar eiga þær ekki heldur eru með þær til afnota í takmarkaðan tíma.
Vinstri græn vilja gagnsætt og heiðarlegt stjórnkerfi þar sem lögð verði áhersla á að sækja fjármuni þá sem eru í skattaskjólum og skattaundanskotum.
Vinstri græn vilja breytingu á stjórnarskránni.
Vinstri græn vilja sjálfstæða utanríkisstefnu.
Á móti þessari stefnu birtist stefna Sjálfstæðisflokksins. Í fjármálum kemur hún fram í lækkandi sköttum á forréttindastéttirnar og ábyrgðarleysi í efnahagsmálum almennt sem birtist með skýrum hætti í hruninu og í skattaskjólum stóreignafólks.
Skoðanakannanir eru ekki kosningaúrslit. Margt bendir til þess að Sjálfstæðisflokkurinn haldi gamalli stöðu sinni sem stærsti flokkur landsins þótt fjórðungsfylgi sé töluvert frá því sem áður var. Ýmislegt bendir til þess að núverandi ríkisstjórn geti haldið áfram með stuðningi Viðreisnar sem er í rauninni brot úr Sjálfstæðisflokknum að uppistöðu til.
Við þessar aðstæður eru Vinstri græn að sækja á. Við þurfum meiri styrk. Í persónum koma þessi stjórnmálaátök fram í tveimur einstaklingum Katrínu Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssyni.
En umfram allt snýst þetta um innihald stjórnmálanna og það hvort unnt verður að mynda starfhæfa ríkisstjórn eftir kosningar. Tvær síðustu stjórnir Sjálfstæðisflokksins með öðrum flokkum entust ekki í heilt kjörtímabil. Önnur féll á hruninu, hin í spillingarmálum. Nú þarf jafnvægi í samfélaginu eftir samfelld átök í átta ár. Það þarf starfhæfa ríkisstjórn sem heldur út kjörtímabil og hefur framtíðarsýn fyrir land og þjóð til margra kjörtímabila.
Katrín gæti leitt slíka ríkisstjórn.
Ég þekki hana.
Skoðun

Þar sem fegurðin ríkir ein
Halldór Eiríksson skrifar

Þjórsárver ekki þess virði?
Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar

Svo verði Íslands ástkæra byggð ei öðrum þjóðum háð
Anton Guðmundsson skrifar

Tíu staðreyndir um íslenskt samfélag
Snorri Másson skrifar

Hættuleg utanríkisstefna forseta Bandaríkjanna
Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar

(orku)Sjálfstæði þjóðar
Benedikt Kristján Magnússon skrifar

Samræmd próf
Jón Torfi Jónasson skrifar

Opið bréf til ráðherra Flokks fólksins, vegna vanda söngnáms
Aileen Soffía Svensdóttir skrifar

Gervigreind sem jafnréttistæki: Skóli án aðgreiningar
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Verða boðaðar kjarabætur örorkulífeyristaka að veruleika eða ekki?
Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Þjónusta við konur með endómetríósu tryggð
Alma D. Möller skrifar

Húsnæðisöryggi – Sameiginleg ábyrgð
Kolbrún Halldórsdóttir skrifar

Sóun á Alþingi
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar

Veiðigjöldin leiðrétt
Hanna Katrín Friðriksson skrifar

Hvar er mennskan?
Ægir Máni Bjarnason skrifar

Hjúkrunarfræðingar í takt við nýja tíma
Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar

NPA miðstöðin 15 ára
Hallgrímur Eymundsson,Þorbera Fjölnisdóttir skrifar

Umhverfisráðherra á réttri leið
Jóhannes Þór Skúlason skrifar

Norðurþing treður yfir varnaðarorð og eignarrétt
Árni Björn Kristbjörnsson skrifar

Lífið í bænum - fyrir suma
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Hver á arðinn af sjávarútvegsauðlindinni?
Einar G. Harðarson skrifar

Þegar dómarar eru hluti af vandanum og bókun 35
Sigríður Svanborgardóttir skrifar

Samræmt námsmat er ekki hindrun heldur hjálpartæki
Eiríkur Ólafsson skrifar

Aflögufærir, hafið samband við söngskóla í neyð
Gunnar Guðbjörnsson skrifar

Að neyðast til að meta sína eigin umsókn í opinberan sjóð
Bogi Ragnarsson skrifar

Tími vindorku á Íslandi – Hvað þyrfti til að koma í veg fyrir raforkuskerðingar?
Edvald Edvaldsson skrifar

Fimm ár í feluleik
Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar

Sunnudagsblús ríkisstjórnarinnar
Jens Garðar Helgason skrifar

Hver er í raun í fýlu?
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Tálsýn um hugsun
Þorsteinn Siglaugsson skrifar