Fer fimmtugasta fjallahlaupið á áratug Ingvar Haraldsson skrifar 23. júlí 2016 07:00 Stefán á hlaupum á Reykjaheiði upp úr Ólafsfirði í ágúst 2014. Mynd/Sævar Skaptason „
Þetta er verkefni sem ég gaf mér í afmælisgjöf þegar ég varð fimmtugur,“ segir Stefán Gíslason, hlaupari og formaður verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Hann hyggst í dag ná markmiði sem hann setti sér á 50 ára afmælinu með því að hlaupa sitt fimmtugasta fjallahlaup fyrir sextugt, 81 kílómetra leið úr Miðfirði yfir Arnarvatnsheiði og suður í Borgarfjörð. „Þegar ég varð fimmtugur fannst mér um tvo valkosti að ræða, hægfara afturför eða markvissa líkamsrækt og hægfara afturför,“ segir Stefán og hlær en hann verður sextugur í mars. Stefán segir upplifunina allt aðra á hlaupum en á öðrum ferðalögum um landið. „Þetta sameinaði áhuga á landfræði og sögu og grúski, að kynna sér leiðir yfir heiðar sem menn fóru í gamla daga. Á mörgum þessum leiðum hafa einhvern tímann orðið slys og sumt af þessu tengist skáldverkum. Það var til dæmis mjög magnað að fara um heiðar fyrir norðan Ísafjarðardjúp sem tengjast sögum Jóns Kalman,“ segir hann. „Maður kynnist fólki öðruvísi en í vinnunni. Maður er að takast á við eitthvað með þeim á einhverri auðn þar sem gilda allt önnur lögmál en á parkettinu,“ segir Stefán enda hafi hann kynnst fjölda fólks á leiðinni. Stefán vinnur að bók um hlaupin sem sem hann vonast til að verði öðrum hvatning til að stunda útivist og jafnvel fara leiðirnar fimmtíu. „Þetta er allt saman þokkalega fært vel frísku fólki,“ segir hann. Leiðirnar eru allar lengri en níu kílómetrar og á milli tveggja byggðarlaga eða staða sem honum þykja áhugaverðir. Eftir hlaupið mun Stefán hafa hlaupið þúsund kílómetra í hlaupunum fimmtíu. Brottför úr Miðfirði er klukkan fimm að morgni og gert er ráð fyrir að hlaupið taki ríflega þrettán klukkustundir á leiðinni en Stefán mun hlaupa í tíu manna hópi. Hann segir flest hlaupin hafa gengið stórslysalaust fyrir sig. „Maður hefur náttúrulega lent í alls konar rugli. Maður er að fara flestar þessar leiða í fyrsta sinn og hefur lent í vægum villum, smá vandræðum og kannski einu sinni í sjálfheldu.“ Til stendur að halda veislu Stefáni til heiðurs í Húsafelli eftir hlaupið. „Svo held ég bara áfram að hlaupa,“ segir hlauparinn.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Parísarhjól sprettur upp við höfnina Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Innlent Fleiri fréttir „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Sjá meira