Athygli vakti að forsvarsmenn RÚV vildu alls ekki upplýsa í hverju munurinn á þáttunum fælist. Barst eingöngu tilkynning frá tæknisviði að röng útgáfa hefði farið í loftið á sunnudegi en sú sem sýnd yrði um kvöldið yrði sú sem erlendir sjónvarpsáhorfendur fengju að sjá.
Sjá einnig:Íslendingar halda í sér yfir ófærð
Af viðbrögðum fólks á Twitter var ljóst að fjölmargir ætluðu ekki að láta réttu útgáfuna framhjá sér fara. Ófærð hefur fengið mikið áhorf undanfarnar vikur en þó hafa útsendingar ekki gengið gallalaust fyrir sig. Þannig hafa fjölmargir sjónvarpsáhorfendur átt erfitt með að heyra nægilega vel hvað persónur segja í þáttunum en unnið hefur verið að lausn hvað það varðar. Er minnt á síðu 888 á Textavarpinu fyrir þá sem vilja hafa textann til hliðsjónar.
Eins og vill verða sló fólk á létta strengi á Twitter í gærkvöldi en fjölmargir höfðu, í gríni, spáð því að munurinn á útgáfunum væri sá að dyrnar á þyrlunni væru ekki opnar í réttu útgáfunni. Og viti menn. Sú varð raunin.
Varúð opin hurð #ófærð pic.twitter.com/FVRce3BcO3
— Lulli (@lulli2567) February 9, 2016
Horfði á #ófærð og er steinhissa. Amatörbragurinn æpir á mann úr hverri senunni. Elíta leikara og top leikstjóri en sagan algerlega fáránleg
— Maggi Peran (@maggiperan) February 9, 2016
Í næsta þætti drepur Trausti þyrlflugmanninn og fréttakonan gerð grunsamleg #Ófærð
— Árni Magnússon (@arni_magg) February 9, 2016
Ok ég veit að ég er 5 ára en sjitt hvað þetta er gaman. #ófærð #lolfærð pic.twitter.com/2jVeUEP1Wl
— Hörður Ágústsson (@horduragustsson) February 9, 2016
Bara ef Twitter hefði verið til þegar J.R. var skotinn. Við komumst næst þeirri upplifun núna #ófærð Þjóðin á hliðina yfir TV þætti #hurðin
— Hans Steinar (@hanssteinar) February 9, 2016
Vildi óska að það hefði farið rangur júróvisjónþáttur í loftið. #ófærð #hurðin.
— Vigdís Garðarsdóttir (@Veinolina) February 9, 2016
Trúi ekki að ég hafi keypt mér nammi og kók fyrir eina hurð #ófærð #hurðin
— Guðný Erla (@gudnyer) February 9, 2016
ég verð ómögulegur í skólanum á morgun vegna þess að fokkings hurðin var opin í gær! Hvað með að segja okkur bara frá þessu? #ófærð
— Gunnar Óli Dagmarars (@goliverkahn) February 9, 2016
Fullkomlega eðlilegt að setja réttann þátt í loftið, hættum að væla yfir öllu.. #ófærð
— Andri Fridriksson (@AFridriksson) February 9, 2016
Fari það í hurðalaust helvíti. Horfði ég á endursýningu til að sjá eina fokkings hurð? #ófærð
— Óli G. (@dvergur) February 9, 2016
Gat RÚV ekki bara sagt "sorry guys, hurðin var lokuð - EKKI opin!" ? #ruv #ófærð
— Matthias Hugi (@Matthiashugi) February 9, 2016
Pinu funny að Geiri Slæ skuli setja þetta tíst inn tvisvar @sonurjons #ófærð pic.twitter.com/wcDUR77jwb
— Benedikt Bóas (@benediktboas) February 9, 2016
Hurðin var lokuð eg ættmað vera sofandi þvi það er skoli a morgun mjog svekkjandi kvold herma en goða nottt #ófærð
— oddnyhafsteinsd (@oddnykarolina) February 9, 2016
Hlakka til að segja við frúnna a morgun þegar hún spyr: Var e-ð öðruvísi? Og svarið verður. Ja, hann var i belti og hurðin var læst! #ófærð
— Benedikt Bóas (@benediktboas) February 9, 2016
Skellur samt að Þorsteinn Bachmann skyldi hafa þurft að henda sér tvisvar út úr þyrlunni bara fyrir þessa vitleysu. #hurðin #ófærð
— Gunnar Birgisson (@grjotze) February 9, 2016
Hélt að mamma væri ennþá vakandi en ég vakti hana með því að segja: "MAMMA, hurðin var lokuð" #ófærð #hurðin
— Margrét Ósk (@Maggaosk) February 9, 2016
Þeir verða að læsa helvítis dyrunum í þriðja þættinum! Þetta fer að verða gott af sjálfsmorðum hjá Sigurði #ófærð
— Jónas Hafsteinsson (@nashyrningur) February 8, 2016
Var #Noel að vinna á RÚV í gær?#ófærð
— Gummi Ben (@GummiBen) February 8, 2016