Verslun með raftæki margfaldaðist á Svörtum fössara Sæunn Gísladóttir skrifar 1. desember 2016 07:00 Fólk í biðröð fyrir utan Elko á svörtum fössara. vísir/eyþór
Samkvæmt gögnum Borgunar var velta korthafa á svörtum föstudegi svokölluðum í síðustu viku ekki hærri en suma aðra daga nóvembermánaðar. Svartur föstudagur er bandarískur siður og var fjöldi verslana á landinu með afsláttartilboð þennan dag. Borgun tók saman gögn um allan nóvembermánuð 2016. Samkvæmt þeim virðist erlenda veltan hafa aukist meira hlutfallslega þessa helgi heldur en velta þeirra sem versla hér heima. Mögulega fara Íslendingar utan á þessum tíma til að versla. Ef skoðuð eru innlend gögn seljendamegin má sjá að verslun með raftæki og tölvur eykst um 240 prósent þennan dag. Húsgagnaverslanir velta 360 prósentum meira og fata- og skóverslanir 70 prósentum meira. Að sama skapi minnkar velta í matvöruverslunum um 30 prósent, bensínsala minnkar um 50 prósent og veitingasala um 20 prósent. Því mætti lesa úr gögnunum að svartur föstudagur sé að virka hjá þeim stöðum sem eru með tilboð í gangi, fólk fari ef til vill ekki að kaupa bensín eða matvörur því að það sé upptekið við annað. Þó að heildarupphæðin hafi verið svipuð og aðrar helgar má áætla að þeir sem voru með tilboðin hafi aukið veltu sínu. Gögn Borgunar eru ópersónugreinanleg og um er að ræða bæði debet- og kreditkortagögn. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu Viðskipti innlent Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Viðskipti innlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira