Hagnaður Arion 49 milljarðar í fyrra Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. febrúar 2016 17:47 Hagnaður Arion banka í fyrra var verulegur.
Hagnaður Arion banka eftir skatta á árinu 2015 nam 49 milljörðum króna. Í tilkynningu frá bankanum segir að afkoma bankans beri þess merki að til lykta voru leidd nokkur umfangsmikil úrlausnarmál sem vörðuðu mikla hagsmuni fyrir bankann. Fyrst og fremst er um að ræða sölu bankans á hlutum í fimm félögum: Reitum fasteignafélagi hf., Eik fasteignafélagi hf., Símanum hf., alþjóðlega drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber og Bakkavor Group Ltd. Öll voru félögin skráð í kauphöll hér á landi eða erlendis, nema eignarhluturinn í Bakkavor Group sem var seldur í kjölfar söluferlis í umsjón Barclays bankans. Þannig nam hagnaður Arion banka á árinu 2015 49,7 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 28,7 milljarða króna á árinu 2014. Arðsemi eigin fjár var 28,1% samanborið við 18,6% árið 2014. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 16,8 milljörðum króna samanborið við 12,7 milljarða árið 2014. Arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi nam 10,4% á árinu samanborið við 10,7% árið 2014. Heildareignir námu í árslok 2015 1.011,0 milljörðum króna samanborið við 933,7 milljarða króna í árslok 2014 og eigið fé hluthafa bankans nam 192,8 milljörðum króna í árslok og hafði hækkað um 20% milli ára. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 24,3 milljörðum króna og eykst verulega milli ára. Ástæðuna má fyrst og fremst rekja til virðishækkunarinnar á eignarhluta í Bakkavor Group Ltd.
Tengdar fréttir Hagnaður Íslandsbanka dregst saman um 2 milljarða Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta var 20,6 milljarðar á síðasta ári samanborið við 22,7 milljarða króna árið 2014. 23. febrúar 2016 09:32 Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Viðskipti innlent Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Viðskipti innlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira
Hagnaður Íslandsbanka dregst saman um 2 milljarða Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta var 20,6 milljarðar á síðasta ári samanborið við 22,7 milljarða króna árið 2014. 23. febrúar 2016 09:32