Fyrir mánuði síðan mætti Kendall Jennar í alveg eins kjól í afmælið sitt og Paris klæddist þegar hún hélt upp á 21 árs afmælið sitt árið 2001. Paris var einnig mikið fyrir Juicy Couture jogging gallana á sínum tíma en þeir leika stórt hlutverk í nýjustu línu Vetements.
Paris var í viðtali við Vogue á dögunum þar sem hún talaði um hvernig tískan var á þeim tíma og hvernig hún sé farin að láta á sér kræla aftur. Hún sagðist ekki hafa verið með neinn stílista heldur keypti allt sem glitraði sem mest og var mikið fyrir buxur og pils sem voru eins lágar í mittið og hægt var.
Sjálf sagðist hún vera ánægð með að Kendall hafi ákveðið að klæðast alveg eins kjól og hún á afmælinu sínu. „ Það er gaman að sjá allt þetta sem maður var alltaf í sé komið aftur í tísku. Minningarnar hellast nánast yfir mann. Minn persónulegi stíll hefur breyst mikið en ég hef gaman af þessu.“ Hún segist þó ekki vera hrifin af því að UGG skórnir séu komnir aftur.







