Guðni Valur ákvað að sleppa setningarathöfninni og stunda frekar æfingar í Bandaríkjunum áður en hann kom suður til Ríó. „Við ákváðum að fara til Bandaríkjanna og æfa eins og brjálæðingar. Við vildum fara í heitara loftslag heldur en hér og koma síðan hingað niður eftir í „kuldann“. Það er kaldara hérna og maður finnur þannig ekki fyrir hitanum,“ segir Guðni Valur.
„Það er búið að ganga mjög vel. Þegar maður hittir á það þá veit maður aldrei hvað gerist. Ég sé alveg úrslitin fyrir mér. Ég ætla að reyna að komast í úrslit og ég er kominn hingað til þess að negla á það. Ef ég hitti á það þá fer ég í úrslit. Það getur allt gerst. Ég á hrikalega bætingu inni og hún á eftir að koma. Bara spurning um hvenær hún kemur,“ segir Guðni Valur.
Negla bara á það
Hann keppir í seinni riðlinum í dag sem á að fara af stað rétt fyrir ellefu. „Það eru bara þrjú köst. Það er ekkert öryggiskast heldur á maður bara að negla á það sérstaklega þegar maður er ekki heims- eða Ólympíumeistari eða heimsmethafi. Maður á alltaf að reyna að vinna í fyrsta kasti,“ segi Guðni.
„Það er alltaf þægilegra að vera í seinni riðlinum upp á það að vita hvað maður þarf að kasta langt,“ segir Guðni. Hann er bara tvítugur og verður ekki 21 árs fyrr en í október. Þarna fer því mikill framtíðarmaður og það eru fleiri Ólympíuleikar í spilunum.
Háleit markmið
„Það er gott að fá að smakka þetta núna en svo kemur maður hrikalega sterkur inn 2020 í Tókýó. Ég ætla að vinna gull þar. Það er markmiðið,“ segir Guðni. Ekki lítið markmið þarna en hann hefur farið hratt upp metorðastigann í kringlunni. Guðni Valur varð í 22. sæti á EM í Amsterdam fyrr í sumar og náði þar lengsta kasti Íslendings á stórmóti. Hann komst þó ekki í úrslitin.
„Ég er bara búinn að vera í kringlunni í tvö ár og var í kúlu á undan því. Það segir ekki allt að vera bara búinn að æfa kringlu í tvö ár því ég var í körfubolta í rúm sjö ár og í golfi í tíu ár. Ég er búinn að æfa allar íþróttir á milli himins og jarðar þar á undan. Ég hef ekki tölu á því hvað ég er búinn að prófa mikið. Það er allt svo svipað í mörgum íþróttum. Það er alltaf mjöðmin sem kemur inn, bæði í golfi, í kringlu og í kúlu. Ég var í boxi líka og það var það sama,“ segir Guðni. En af hverju valdi hann þá kringlukastið.
Small inn í kringluna

Það rigndi í Ríó þegar við hittum á hann í Ólympíuþorpinu en það er betri spá á keppnisdögunum sem verða vonandi tveir. „Ég var að skoða veðurspána og það er spáð léttskýjuðu og sól á föstudaginn (í dag). Laugardagurinn verður rosalegur því þá verður ekkert nema sól. Föstudagurinn snýst bara um að fá að keppa á laugardeginum,“ segir Guðni.
„Ég ætla að setja allt í þetta. Ég veit alveg að ég er nógu sterkur og nógu hraður til þess að kasta nógu langt til að komast í úrslit. Það þarf bara að hitta á það. Ég er ekki búinn að hitta á það í sumar. Þetta eru allt búin að vera köst sem ég er að missa til hægri eða húkka til vinstri. Besta kastið á tímabilinu var þegar ég húkkaði kringluna lengst til vinstri. Mér fannst það ekki einu sinni flott kast,“ segir Guðni.
Kannski sáttur að ná heimsmeti
Hann er gagnrýninn á sjálfan sig. „Ef maður hittir á þetta góða kast, en svo er spurning hvort manni finnist eitthvað vera gott kast. Eins og þegar maður var í golfi og spilaði lélegan hring þá pælir maður ekki í neinu heldur spilaði bara ömurlega. Þegar maður spilar góðan hring þá pælir maður í öllum þessum fimm höggum sem maður hefði getað gert betur. Mér finnst ég aldrei gera neitt vel,“ segir Guðni en bætir við:
„Ég verð kannski sáttur þegar ég næ heimsmetinu. Kannski verður það bara lélegt kast og kannski eru lélegu köstin góð köst og góðu köstin léleg,“ segir Guðni heimspekilegur. Hann á framtíðina fyrir sér og er ekki maður sem vill tala í klisjum.
„Leiðinlegasta setning sem mér finnst er að segja að þetta fari í reynslubankann. Þetta snýst bara um að komast í úrslit. Ég er ekki hérna til að vera hérna heldur til að komast í úrslit. Annars er alltaf gaman að vera hér,“ sagði Guðni Valur brosandi að lokum.