Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Selfoss -28-28 | Selfyssingar náðu í stig til Eyja Guðmundur Tómas Sigfússon í Vestmannaeyjum skrifar 24. mars 2016 16:00 Díana Dögg Magnúsdóttir, einn helsti markaskorari ÍBV. vísir/ernir
Selfoss sótti eitt stig til Eyja í Olís-deild kvenna í dag. Leiknum lauk með 28-28 jafntefli en ÍBV virtist vera með leikinn í höndunum þegar tuttugu sekúndur lifðu leiks. Hrafhildur Hanna Þrastardóttir var að venju í stuði hjá Selfyssingum en hún skoraði heil tólf mörk í leiknum. Katrín Ósk Magnúsdóttir var þó frábær í liði Selfoss þar sem hún varði 20 skot. Mörg hver voru úr algjörum dauðafærum á mikilvægum tímapunktum. Erla Rós Sigmarsdóttir átti einnig frábæran leik í marki ÍBV þar sem hún varði 16 skot. Fyrir leikinn bjuggust ekki margir við öðru en sigri ÍBV, þar sem Selfoss-stelpur hafa ekki oft sótt stig til Eyja. Sebastian Alexandersson kom inn á það í viðtali að það hafi verið sérstaklega sætt að sækja stig, vegna þess. Í upphafi leiks var jafnræði í leiknum en ÍBV tók fljótt forystuna, þær leiddu leikinn ýmist með tveimur til þremur mörkum. Þær komust fimm mörkum yfir þegar tvær mínútur voru til hálfleiks. Selfoss gaf þá mikið í og náði að minnka muninn í tvö mörk og auk þess byrjaði ÍBV með leikmann útaf í síðari hálfleik. Sebastian Alexandersson gerði þá vel í því að fá sínar stelpur til að byrja seinni hálfleik vel. Það tók þær tvær sóknir að rífa niður forskot ÍBV og komust þær yfir með því að skora þrjú fyrstu mörk síðari hálfleiks. Þá hafði Vera Lopes einnig verið rekin útaf og Drífa Þorvaldsdóttir klikkað á vítakasti. Það virtist því allt vera að ganga hjá Selfossi en ÍBV tók þá aftur frábæran kafla og náðu sér í tveggja marka forskot á ný. Nú hefst eltingaleikur hjá Selfossi sem náðu alltaf að minnka forskot ÍBV niður á ný. Á köflum í leiknum var þetta algjör markvarðasýning þar sem Erla Rós og Katrín Ósk áttu algjöra stórleiki í markinu. ÍBV hirti forystuna á síðustu tíu mínútunum og virtust ætla að sigla heim þægilegum sigri. ÍBV var með boltann þegar 20 sekúndur voru eftir en þar gerði Ester Óskarsdóttir mistök og missti boltann. Adina Maria Ghidoarca hirti boltann og brunaði upp völlinn þar sem hún jafnaði leikinn. ÍBV tók síðan leikhlé og hafði fimm sekúndur til þess að skora sem þær gerðu ekki. Þær áttu síðan fríkast þegar leiktíminn var úti en þá skaut Vera Lopes einhverja úr vegg Selfyssinga niður og fékk að líta rauða spjaldið réttilega þar sem boltinn fór í andlit Selfyssingsins. Eyjakonur gætu því misst Stjörnuna fram úr sér í 5. sæti deildarinnar en Selfoss færir sig lengra frá Fylki sem eru í 8. sætinu. Sebastian Alexandersson: Við brutum ákveðinn ís„Við höfum aldrei verið nálægt því að vinna hérna, það er ekki hægt annað en að vera ánægður núna,“ sagði Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfoss, eftir eitt stig úti í Eyjum. „Við brutum ákveðin ís, það er jákvætt. Ég er sáttastur með varnarleikinn, þó svo að ÍBV hafi skorað fullt af mörkum þá erum við að þreifa okkur áfram með óhefðbundinn varnarleik.“ „Mér fannst hann smella frábærlega í seinni hálfleik. Þetta er eitthvað sem við verðum að skoða, hvort við notum í framhaldinu eða ekki. Stundum virkar svona bara einu sinni eða tvisvar,“ sagði Sebastian um varnarleikinn sem var góður í dag. „Varnarleikurinn, markvarslan og baráttan fyrst og fremst, það var 100% einbeiting hjá öllum leikmönnum liðsins að ná í eitthvað hérna þrátt fyrir að hafa aldrei fengið neitt hér. Þetta var ákveðið karakterspróf sem við stóðumst.“ Selfoss-liðið kom vel inn í seinni hálfleikinn, var eitthvað sérstakt sem Sebastian sagði við sínar stelpur? „Nei, nei, við skerptum á okkar leikskipulagi og herfræði. Við framkvæmdum betur það sem við höfðum trú á. Það er öðruvísi að spila við ÍBV útaf þessari vörn, það er ekki flókið að opna hana. Það er ekkert mál að segja það og annað mál að gera það.“ „Þú mætir þessari vörn bara tvisvar sinnum á ári, þar af leiðandi eru leikmenn ekki alveg í „synci“ með það. Við fengum fullt af flottum færum og hún varði fínt í markinu hjá þeim og fullt af dauðafærum,“ sagði Sebastian meðal annars eftir leik. Hrafnhildur Ósk Skúladóttir: Línuspilið varð okkur að falli„Ég hefði klárlega viljað fá bæði, sérstaklega þegar við erum einu marki yfir og með boltann þegar 15 sekúndur eru eftir,“ sagði Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, þjálfari ÍBV, eftir jafntefli á heimavelli gegn Selfossi. „Þetta er virkilega svekkjandi en hörkuleikur allan tímann og þær spiluðu vel. Það sem fór mest úrskeiðis var það hversu oft við reyndum að troða boltanum á línumanninn, við töpuðum þannig boltanum örugglega oftar en tíu sinnum í leiknum.“ „Við vorum mikið einum færri þá, fengum eina glórulausa brottvísun sem hjálpaði okkur ekki. Við áttum að fara inn í hálfleik með 4-5 mörk í staðinn fyrir að hleypa þeim niður í tvö mörk,“ sagði Hrafnhildur um lélega byrjun síns liðs í síðari hálfleik. „Munurinn er algjörlega það, að tapa tíu boltum með línuspili og þegar við töpuðum boltanum fáum við oft mark í bakið.“ „Baráttan í mínu liði var flott og öllum mörkum var fagnað og það var leikgleði sem vantaði ekki. Ég legg mikið upp úr því að síðustu leikirnir verði þannig. Við erum enn í séns á að fara inn í heimaleikjarétt og við erum klárlega að stefna að því.“
Olís-deild kvenna Mest lesið Auglýsir ólögleg veðmál: „Hryggir mig mjög að Kristófer fari þessa leið“ Körfubolti Miðasala á leik Íslands og Úkraínu hefst aftur í hádeginu í dag Fótbolti Engin hjartaaðgerð en smá magnyl skaðar ekki Fótbolti Rúnar þakkar fyrir stuðning eftir mikið sjokk Fótbolti Handtekinn eftir að hann fannst sofandi í bíl í miðri umferð Körfubolti Járngirðingar í kringum leikmannahótel Ísraela í Osló Fótbolti „Ætla rétt að vona að þeir láti hann borga það bara úr sínum eigin vasa“ Körfubolti Tuchel með fast skot á stuðningsmenn: „Það var algjör þögn á leikvangnum“ Fótbolti Fæddist með gat á hjartanu Enski boltinn Lárus í vinnu hjá danska landsliðinu Körfubolti Fleiri fréttir Handboltinn í fyrsta sæti en tilbiður enn listagyðjuna Draumadeildin staðið undir væntingum Leyfðum okkur hluti sem að við höfum ekki verið að gera Háspenna þegar Selfoss fékk sín fyrstu stig Viktor Gísli og Bjarki unnu í Meistaradeildinni Nýliðarnir hársbreidd frá sigri í Krikanum Guðjón og Arnór stýrðu til sigurs í Þýskalandi Uppgjörið: Valur - Afturelding 35-25 | Magnaður Björgvin Páll lagði grunninn Sammála Snorra: „Alltaf á hreinu að við vorum á sömu blaðsíðunni“ Nýtur sín vel í sterkari deild: „Alveg sannfærður um að ég hafi valið vel“ Anton og Jónas áfram fastagestir á EM Skilur ekki hvernig var hægt að breyta víti í markmannskast ÍBV og Valur ein á toppnum eftir háspennu í Breiðholti Donni öflugur og skildi heimamenn eftir í sárum Íslenska tríóið fagnaði frábærum sigri í toppslag Íslendingarnir frábærir og fögnuðu í Danmörku Allt upp á tíu hjá Elínu Klöru Varaforseti EHF handtekinn Vonast til að landsliðstreyjurnar fari í sölu á næstu vikum „Fjárhagsstaðan býður ekki upp á það að við leikum okkur með þann miðafjölda“ Lovísa Thompson kemur aftur inn í íslenska A-landsliðið Sjáðu svakalega vítakeppni þegar frændliðin börðust í bikarnum Aron Rafn hetja Hauka gegn Val og Fjölnir henti Stjörnunni úr leik Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Unnu síðustu átján mínúturnar með tíu mörkum Laus úr útlegðinni og mættur heim Selfoss úr leik þrátt fyrir sigur Misjafnt gengi Íslendingaliðanna Valur áfram eftir góðan sigur KA áfram eftir þægilegan sigur í Eyjum Sjá meira