Um helmingur allra starfa gæti horfið Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 28. desember 2016 07:00 Sjálfkeyrandi bílar sem þessi gætu kostað leigubílstjóra starfið. vísir/afp
Tæki með gervigreind gætu hirt 47 prósent allra starfa í Bandaríkjunum á næstu tveimur áratugum. Á þetta er bent í nýrri opinberri skýrslu frá bandaríska ríkinu. Í skýrslunni er jafnframt bent á að þrátt fyrir að miklir möguleikar verði á auknum vexti fyrirtækja vegna aukinnar framleiðni sem hlýst af því að notast við gervigreind ógni slík þróun störfum. Langtímanotkun gervigreindar gæti leitt til ójafnaðar í samfélaginu og aukið bilið á milli minna menntaðra og sérhæfðra. „Áhrif gervigreindar á vinnumarkaðinn í náinni framtíð munu áfram þróast í sömu átt og tölvuvæðing og breytingar í samskiptatækni hafa ýtt þróuninni í undanfarna áratugi. Mat rannsakenda er að á milli níu og 47 prósent starfa muni tapast varanlega vegna þróunarinnar,“ segir í skýrslunni sem ber heitið Artificial Intelligence, Automation and the Economy. Höfundar skýrslunnar líta til dæmis til starfa í samgöngum. Er þar bent á að sjálfkeyrandi tækni sé nærri tilbúin og að innan nokkurra ára gæti hún tekið yfir störf leigubílstjóra. Þá gætu skyndibitakeðjur einnig nýtt sér slíka tækni bæði til þess að elda mat og taka við pöntunum. „Ef mat sérfræðinga stenst mun þróunin breyta lífi milljóna Bandaríkjamanna og mögulega valda þeim efnahagslegum erfiðleikum,“ segir í skýrslunni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tækni Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira