Rýtingur Þingsins í bak þjóðar? Kári Stefánsson skrifar 23. desember 2016 07:00 Þegar ég var kandídat á taugalækningadeild Landspítalans var kústaskápur á ganginum sem tengdi A- og B-ganga lyflækningadeildar við hvelfingu þar sem voru fjórar dyr, einar þeirra veittu aðgang að taugalækningadeildinni þar sem ég vann. Auk kústa hýsti skápurinn fötur og tuskur og einhvers konar sápubrúsa. Dyrnar inn í skápinn voru myndarlegar eins og þær ætluðu að veita manni aðgang að stórum sal og hurðin fyrir þeim rammgerð að sama skapi. Hinum megin við þær var hins vegar bara eins og hálfs metra djúpur skápur. Einu sinni þegar ég var á vakt dó sjúklingur sem ég tók þátt í að annast og ég ráfaði inn í skápinn, lokaði dyrunum og settist á gólfið í niðamyrkri og dvaldi þar um hríð, rembdist við að bæla angistina og ná áttum. Það var ekki fyrr en mörgum árum síðar að ég gerði mér grein fyrir því að í myrkrinu skápsins var ég ekki bara að sækjast eftir fjarveru ljóss heldur líka þeirri huggun sem fæst við að myrkrið vefji sig utan um öll skynfæri. Þetta var líklega tilraun til þess að reka eina angist út með annarri eða kannski tveimur öðrum, vegna þess að auk myrkfælninnar þjáðist ég af töluverðri innilokunarkennd. Þegar ég gekk um þennan tengigang nú í haust um miðja nótt, í töluverðri pínu, í þetta skiptið vegna þess að hún systir mín var illa lasin og hafði verið flutt á gjörgæslu, þá sýndist mér að kústaskápurinn góði væri þar enn þá. Ég ákvað að best væri að hörfa aftur inn í hann í leit að huggun en áður en ég gat tekið í hurðarhúninn hringdi farsíminn. Það var systurdóttir mín að segja mér að læknir á gjörgæslunni ætlaði að flytja móður hennar yfir á gjörgæsluna í Fossvogi vegna þess að sú við Hringbraut væri ekki nægilega vel mönnuð til þess að sinna henni. Ég rauk upp á aðra hæð og inn á gjörgæsluna til þess að lesa yfir hausamótunum á lánlausum lækni. Það er nefnilega þannig að ef sjúklingur þarf raunverulega á gjörgæsluvist að halda er óskynsamlegt að flytja hann milli herbergja og brot á mikilvægu prinsippi að reyna að ferja hann milli húsa, prinsippinu að gera allt sem hægt er til þess að bjarga lífi sem er í bráðri hættu. Gjörgæslulæknirinn sagði að hann yrði einfaldlega að taka þessa áhættu vegna þess að ástandið á Spítalanum væri svo slæmt. Þegar ég benti honum á að hann ætlaði að taka áhættu með líf systur minnar svaraði hann því til að hann gerði sér grein fyrir því. Það sjúkrahús þar sem gjörgæslulæknir sér sig knúinn til þess að vísa út í regnvota haustnóttina sjúklingi með blóðþrýsting sem hefur fallið niður úr öllu valdi, er hættur að mynda þvag og er með skerta meðvitund, er í algjöru rusli og ætti ekki að hafa starfsleyfi að óbreyttu ástandi, nema af þeirri ástæðu einni að það er enginn annar slíkur á Íslandi. Ástandið á Spítalanum var skelfilegt þessa nótt, það er enn skelfilegt og verður áfram um hríð ef Alþingi Íslendinga rekur þann rýting í bak þjóðarinnar að samþykkja það frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017 sem nú liggur fyrir. Það er með ólíkindum að sá möguleiki sé fyrir hendi nokkrum vikum eftir að kosningabaráttu lauk þar sem allir flokkar hétu því að mikið yrði lagt í endurreisn heilbrigðiskerfisins ef þeir kæmust til valda. En hann er klárlega fyrir hendi, sá möguleiki. Það hefur aldrei verið ljósara en nú vegna þess að Alþingi er með sinn kanarífugl í námugöngunum sem sýnir okkur þegar loftið er orðið mettað af skít. Sá kanarífugl er Ásmundir Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í Suðurlandskjördæmi sem heldur því fram að stjórnendur Landspítalans leggi sjúklinga á ganga og í skúmaskot til þess að skemmta myndavélum og blaðamönnum. Hann stendur greinilega í þeirri trú að það sé fátt sem læknar spítalans skirrist við að leggja á lasið og meitt fólk til þess að blekkja þjóðina til samúðar með heilbrigðiskerfinu. Í hans huga er nægt pláss á Spítalanum. Hver veit nema hann sjái eitthvað sem stjórnendur Spítalans gera ekki, til dæmis tækifærið sem kústaskápurinn á tengiganginum býður upp á. Það er nefnilega þannig mál með vexti að þótt ekki sé hægt að koma þar fyrir sjúkrarúmum má setja upp slá í um það bil tveggja metra hæð og hengja á hana sjúklinga á herðatrjám. Þessi ráðstöfun myndi henta einkar vel þeim meðvitundarlausu af því að þeim er oftast alveg sama hvar þeim er komið fyrir til skamms tíma. Ásmundur gæti meira að segja gengið fram fyrir skjöldu og boðist til þess að láta hengja sig þar upp yfir helgi til þess prófa kerfið. Sá möguleiki er fyrir hendi að þegar hann kæmi út úr skápnum að lokinni helginni myndi hann loksins gera sér grein fyrir því að hans framlag til umræðunnar er best, skýrast og skynsamlegast þegar hann þegir þunnu hljóði, mannvits-brekkan. En Ásmundur er harla lítill partur af vandanum. Hans orð eru bara bergmál af því sem er sagt út um allt á Alþingi Íslendinga. Fyrir kosningar sögðu frambjóðendur upp til hópa að þeir væru sammála þeirri skoðun meiri hluta þjóðarinnar að heilbrigðiskerfið væri laskað og þarfnaðist myndarlegrar endurreisnar. Nú virðist meiri hluti þeirra sem hlutu kosningu vera kominn á þá skoðun að þjóðin sé að ýkja vandann. Hvað eigum við eiginlega að gera við þetta fólk sem er greinilega ekki lengur fulltrúar fólksins sem kaus það?Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alþingi Kári Stefánsson Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar