Jól

Sýrðar rauðrófur, eplasalat og rauðkál með jólabjór

Starri Freyr Jónsson skrifar
Sýrðar rauðrófur.
Sýrðar rauðrófur. Vísir/Vilhelm
Gott meðlæti með jólasteikinni skiptir Hauk Má Hauksson, yfirmatreiðslumann á Grillmarkaðnum, öllu máli. Honum þykir gaman að velta fyrir sér ólíku hráefni og ýmsum skemmtilegum útfærslum enda er hann duglegur að prófa sig áfram í eldhúsinu.

Þar nefnir hann helst rauðrófur því það er endalaust hægt að leika sér með þær segir hann.

Þótt hann sé hvorki fastheldinn á jólamat og meðlæti þykir honum alltaf gott að fá hamborgarhrygg, brúnaðar kartöflur, rauðkál og sósu.

Haukur Már Hauksson, yfirmatreiðslumeistari á Grillmarkaðnum.Vísir/Vilhelm
„Annars er ég alls ekki vanafastur í þessum efnum og brýt flestar reglur. Raunar finnst mér bestu jólin vera á ströndinni

með gott taco og nóg af guacamole.“

Hér gefur Haukur Már lesendum þrjár bragðgóðar og skemmtilegar uppskriftir að meðlæti með jólasteikinni.

Sýrðar rauðrófur


5-7 stk. rauðrófur

300 ml eplaedik

300 ml sykur

300 ml vatn

3 stk. kanilstöng

8 stk. anísstjörnur

10 stk. negulnaglar

Rauðrófur skornar í teninga og settar í box. Restin af hráefnunum sett í pott og suða fengin upp. Þá er vökvanum hellt sjóðandi heitum yfir rauðrófurnar. Látið standa við stofuhita í 30 mínútur. Hægt að bera fram kalt eða heitt.

Eplasalat.Vísir/Vilhelm
Eplasalat

5 stk. græn epli

200 g japanskt majónes (Kewpie)

100 g flórsykur

150 g þurrkuð trönuber

150 g heslihnetur

4 msk. léttþeyttur rjómi

Majónesinu og flórsykrinum blandað saman. Þurrkuðu berin söxuð og hnetur muldar niður. Skerið eplin í teninga og blandið þeim við majónesið. Blandið restinni af hráefninu út í. Gott að skreyta salatið með hnetum og trönuberjum.

Rauðkál með jólabjór.Vísir/Vilhelm
Rauðkál og jólabjór

1 kg skorið rauðkál

300 g púðursykur

300 ml rauðvínsedik

3 stk. kanilstangir

5 stk. stjörnuanís

8 stk. negulnaglar

100 ml trönuberjasafi

200 ml góður jólabjór

30 ml kirsuberjaedik

30 ml eplaedik

Salt til að smakka til

Allt hráefni utan bjórsins sett saman í pott og látið malla þar til rauðkálið er soðið (15-30 mín.). Bjórnum er bætt við rétt undir lokin. Smakkað til með ediki og salti.






×